19. febrúar 2010
Úff! Þetta er víst fyrsta bloggið mitt á þessu herrans ári! En allvega.....
Við áttum langt jólafrí hér í Addis. Lengra en upphaflega var planlagt, sem kom nú reyndar ekki til af góðu. Þ.e. við sátum hér föst vegna veikinda bóndans. Hann fékk einhverja heiftarlega sýkingu í eitil á hálsi sem læknarnir hérldu fyrst að væri hettusótt. Dr. Eina Eriksen, norskur læknir sem skoðaði hann, var samt ekki alveg viss og sendi Kristján í rannsókn á Swedish clinic, þar sem fljótlega kom í ljós að þetta var bakteríusýking. Hann er orðinn frískur núna en er samt enn að klára fjórða sýklalyfjakúrinn. Þá er þetta vonandi búið.
Krakkarnir voru í skólanum síðustu tvær vikurnar fyrir jól og að venju er alltaf mikið um að vera fyrir jólin. Dagbjartur Elí tók þátt í jólasöngleiknum „Whoops a daisy angel" sem var alveg hrikalega krúttlegt. Við vorum búin að vera að æfa lögin heima og hann stóð sig eins og hetja! Rétt fyrir jól fórum við í nokkra daga til Awasa svona rétt til að slappa af fyrir jólin. Sjálfa hátiðina vorum við svo hér í Addis. Það var borðað hangikjöt að venju og meira að segja líka lambalæri sem við tókum með að heiman í sumar. Á jóladag voru tónleikar hér í kapellunni þar sem bæði hérbúandi kristniboðar og gestir komu fram. Það tókst mjög vel og góð tilbreyting. Við ætluðum síðan að vera komin til Voító fyrir áramót þar sem við áttum von á gestum, norskri fjölskyldu sem býr hér í Addis, en eins og áður sagði gekk það ekki eftir vegna veikinda. En í staðin gátum við hitt Katrínu og Vilborgu (frænkur mínar sem eru aldar upp hér í Eþíópíu) sem voru komnar til að vinna í Addis og í Jinka. Það var gaman að fá aðeins að hitta þær áður en við fórum svo suður eftir. Þær ætla svo að heimsækja okkur til Voító núna í byrjun mars.
Við vorum ekki nema tvær vikur í Voító áður en við þurftum að fara af stað aftur á ráðstefnu NLM kristniboða í Awasa. Á þessum tíma gerðist samt ýmislegt. Margrét Helga er búin að eignast nokkrar vinkonur í Gisma og er farin að syngja í kirkjukórnum. Kórar Mekane Yesus kirkjunnar eru allir í sérstökum búningum, kirtlum með skuplur á höfðinu og er litli kirkjukórinn okkar í Gisma engin undantekning. Hún fer á kóræfingar á hverum degi og syngur lög með mörgum erindum á bæði amharísku og tsamakko. Það var ekki laust við að mamman táraðist í fyrstu guðsþjónustunni sem litla krúsin var að syngja.
Jóel er alltaf sami dýrakallinn og á þessum tveimur vikum eignaðist hann tvö gæludýr, fuglinn Che che sem lifði ekki nema tvo daga og íkornann Kirrkirr sem fékk að gleðja okkur aðeins lengur. Vinir hans komu með dýrin til hans. Þegar fuglinn dó varð mikil sorg og hann var jarðaður í bakgarðinum. Kirrkirr var alveg ótrúlega krúttlegur og alveg frábært gæludýr. Það var smíðað búr handa honum , aðallega til að sofa í  á nóttunni. Hann var svo lítill að við urðum að gefa honum mjólk úr sprautu og til að byrja með vildi hann ekkert annað. Hann braggaðist fljótt og hændist mjög að krökkunum. Vildi helst kúra í hálsakotinu á þeim og ef hann var settur á jörðina elti hann þau og stoppaði ef þau stoppuðu. Það varð úr að hann var tekinn með til Awasa í með viðkomu í Arba Minch og svo til Addis. Það gekk vel með hann í bílnum. Hann bara kúrði hjá krökkunum og fékk sér af og til mjólk og brauðmola. Í Awasa var hann hvers manns hugljúfi og allir bæði ungir og eldri yfir sig hrifnir af honum. En Addis varð honum ofviða greyinu. Hann þoldi lílega ekki kuldann og varð veikur nokkrum dögum efir að við komum hingað þrátt fyrir ýtrekaðar tilraunir til að halda á honum hita. Hann dó síðan fyrir viku síðan. Það var mikil sorg og mikið grátið. En svona er lífið...
Ráðstefnan í Awasa gekk vel og var óvenju afslappað andrúmsloft. Fá mál voru á dagskrá og því gafst meiri tími en ella til að ræða starfið almennt. Krakkarnir voru í góðum höndum nema frá biblíuskólanum á Fjellhaug í Osló. Þaðan hefur komið hópur á hverju ári til að sjá um barnadagskrá sem er bara alveg frábært. Munar miklu fyrir okkur foreldrana.
Dagbjartur Elí átti afmæli fjórða febrúar og voru bakaðar pönnsur í tilefni dagsins. Almennileg veisla var svo haldin efir að við komum til Addis þar sem ekki gafst tími til þess í Awasa. Hann lenti reyndar í því tveimur dögum fyrir afmælisdaginn að handleggsbrotna þegar hann datt úr klifurgrind. Það var farið með hann í röntgenmyndatöku í Awasa og svo skoðuðu hann Torleif og Jerin Kiserud, sem eru læknar í Jinka. Það kom í ljós að hann þufti að fá gifs. Sama dag höfðu Fjellhaug krakkarnir verið að föndra gifsgrímur með börnunum og það var akkúrat afgangur sem passaði á höndina á Dagbjarti Elí. Torleif setti svo á hann gifsið úti á tréstólpa með aðstoð efnilegra ungra stúlkna! Hann er enn með gifsið en losnar við það eftir u.þ.b. viku.
Sl. tvær vikur höfum við svo verið í Addis. Krakkarnir una sér vel í skólanum og það er mikið fjör hér á lóðinni líka. Margrét Helga og þrjár norskar vinkonur hennar stofnuðuð dans og söng hópinn „Makíato" sem hefur komið fram við hin ýmsu tækifæri bæði í Awasa og í Addis. Þær eru líka búnar að vera á fullu að búa til skartgripi sem þær selja til styrkar kristniboðsstarfinu. Elisabeth norskur kennari hér, saumaði á þær allar eins tunikur og þær skottast um allt með ósýnilegan þráð á milli sýn. Bara alveg frábært. Jóel leikur mest við Samúel vin sinn sem býr hér á lóðinni go svo eru norskir bræður sem búa hér rétt hjá sem eru líka góðr vinir hans og leikfélagar. Hann fékk að gista hjá þeim síðustu helgi og ég get ímyndað mér að það hafi verið fjör. Dagbjartur Elí unir sér vel í leikskólanum. Hann fékk reyndar ekki alveg pláss núna alla dagana vegna aukins fjölda nemenda í KG1 núna eftir jól en það hjálpaði að Mikael Kiplesund vinur hans er hér núna líka. Þeir bralla margt saman og fara oft að heimsækja „mormor" ömmu hans Mikaels sem býr hér á lóðinni. Við vorum svo heppin núna að fá alveg frábæra barnapíu fyrir Davíð Ómar. Hún heitir Selam og hefur verið hér stundum í afleysingum. Það var bara ást við fyrstu sýn. Hún er dugleg og ákveðin sem á vel við Davíð Ómar. Þau eru líka oft með Asnakú, sem er barnfóstran sem við höfðum meðan við bjuggum í Addis, og Jon Gabriel, vini Davíðs Ómars sem Asnakú er núna að passa.
Þannig að við gætum eiginlega ekki haft það betra. Á meðan börnin eru sátt og ánægð erum við það líka. Það skiptir alveg ótrúlega miklu máli.
Við fengum líka óvænta heimsókn frá Önnu Páu mágkonu minni nú í febrúar. Hún kom og var nokkra daga hjá okkur í Voító og fór svo með okkur til Arba Minch þar sem við m.a. fórum í Nech sar þjóðgarðin og sáum sebrahesta, flóðhesta, krókódíla og antílópur. Þar drukkum við líka vatn úr uppsprettu lindunum sem Arba Minch (Fjörtíu lindir) dregur nafn sitt af. Og stukkum meira að segja út í til að kæla okkur. Aveg dásamlegt! Anna Pála kom svo með okkur til Awasa og var þar í tvo daga en fór svo í ferð til norður Eþíópíu á meðan við vorum á ráðstefnunnni. Svo hittumst við aftur í Addis þar sem hún fékk m.a. að vera með á menningarkvöldi í bekknum hans Jóels. Þar höfðu krakkarnir allir undirbúið kynningar af löndum sínum og allir áttu að koma með mat sem fólk gat svo keypt fyrir ljósritaða peninga frá hverju landi. Við komum með rjómapönnsur sem vöktu mikla lukku.
En nú fer þessari Addis dvöl að ljúka og við höldum suður á mánudaginn þar sem við verðum næstu sjö vikurnar. Það fer síðan að styttast í að við flytjum heim, um miðjan júní í sumar. Ég verða að viðurkenna að því fylgja blendnar tilfinningar. Við hlökkum að sjálfsögðu til að búa nálægt fjölskyldu og vinum en það verður líka erfitt að kveðja og fara héðan og margt sem við komum til að sakna. En ef Guð lofar komum við aftur....
Þá erum við aftur komin til Addis. Það er eiginleg alltaf gott að koma hingað. Uppábúin rúm á gestahúsinu. Allt hreint og fínt, ekkert stöðugt ryk og hitastigið talsvert þægilegra. Það er reyndar kalt hér á morgnana og kvöldin núna en við erum með ofn í íbúðinni svo það er allt í lagi. Sólin skín á daginn og þá hlýnar.
Síðasti mánuður hefur einkennst af pensilín inntöku og tilheyrandi veikindum sem enn eru ekki alveg á enda. Síðast þegar við vorum í Addis var ég veik allan tímann og var enn ekki góð þegar við komum til Voító. Ég endaði á að fara á pensilín þar sem ég var svo slæm í lungunum og með ljótan hósta. Það sama átti við um litlu strákana. Margrét Helga og Jóel urðu bæð alveg hundlasin í Voító og enduðu líka á pensilíni. Það er ekki gaman að vera með hita þegar lofthitinn er 40°eða meira, vonlaust að reyna að kæla líkamann niður. En þau jöfnuðu sig nú öll og ég líka eða að minnsta kosti í smá stund. Pensilínið fer svo illa í mig. Ég var svo slöpp og þreytt af því og fékk svima og ógleði svo ég var mjög fegin þegar ég gat hætt að taka það. En Adam var ekki lengi í Paradís. Ég var búin að vera alveg frísk í þrjá daga þegar við fórum til Jinka og fyrsta kvöldið þar fékk ég hita, alveg upp úr þurru. Ég var strax skárri aginn eftir en var svona hálfdrusluleg í nokkra daga. Svo komum við aftur til Voító og þá tók ekki betra við. Eina nóttina fyrir svona viku síðan, þá vaknaði ég við alveg skelfilegan verk í handleggnum. Ég ætlaði að reyna að hrista þetta af mér en á endanum varð ég að far fram og hugsaði mér að taka verkjalyf til að geta sofnað. Þegar ég kom fram og kveikti ljósið sá ég hvers kyns var. Ég var ss. Með pínu ogguponsu sár á þumlinum sem hafði komist svona heiftarleg sýking í. Fingurinn var stokkbólginn og eldrauður og frá honum lá rauð rák upp undir handarkrika. Það fyrsta sem mér datt í hug var Alfreð vinnumaður í Emil í Kattholti því svona var því lýst í bókinni þegar hann fékk blóðeitrun. Svo þá var bara að byrja á nýjum skammti af pensilíni, þriðji skammturinn á tveimur mánuðum. (ég fékk líka slæma sýkingu í október þá í fótinn þannig að ég gat ekki gengið). Maginn á mér er búinn að fá yfir sig af pensilíni og ég er fegin að þetta er búið í bili. En ég þakka Guði fyrir að við höfum aðgang að þessum lyfjum. Maður veit ekki hvað hefði getað gerst hefði ég ekki strax tekið pensilín þarna um nóttina. Núna erum við krakkarnir hress en Kristján er búinn að vera hundlasinn frá því á laugardag. Hann fór samt að kenna á Seminarinu í gær og í dag og er eitthvað að skríða saman. Ég vona bara að við getum verið frísk yfir jólin. Við ætlum að vera hér núna til 18. Des. fara þá í fjóra daga til Awasa og vera svo hér um jólin. Við förum svo líklega aftur suðureftir á milli jóla og nýjárs.
Krakkarnir eru komin í skólann aftur og alsæl að venju. Bekkurinn hans DagbjartsElí er að fra að sýna jólasöngleik núna í vikunni. Við vorum með lögin á kasettu heima svo hann er búinn að læra allt saman, eða svona það helsta allavega, og er alveg rosalega spenntur. Ég held ég sé ekki minna spennt að fara að sjá hann! Þetta á eftir að verða alveg hrikalega krúttlegt. Svo eru allskonar jólapartý og allt mögulegt um að vera í skólanum. Margrétar Helgu og Jóels bekkur tekur þátt í tónleikum. Svo er líka ýmislegt um að vera í norræna samfélaginu. Aðventumorgunverður á hverjum sunnudegi, julespill á Mekanissa, jóleikrit sem allir taka þátt í. Þá er sett upp fjárhúsog allir fá hlutverk. Þá er jólafrásagan lesin í bundnu máli og söngvar sungnir og það er meira að segja lifandi asni. Venjulega er er Jesúbarnið leikið af yngsta kristniboðabarninu en í ár er enginn með svona pínulítið barn svo það verður stór dúkka í staðinn. Davíð Ómar var Jesúbarnið fyrir tveimur árum og við Kristján, María og Jósef. Þetta er alveg æðislegt og kemur manni svo sannarlega í jólaskap.
Svo verða æfðir jólakórar fyrir guðsþjónustuna hér á aðfangadag. Bæði barna og fullorðins. Í ár stjórna ég bara barnakórnum þar sem það er annar tónlistarkennari hér líka sem tekur að sér fullorðins kórinn. Ég er mjög fegin því. Ekki svo oft sem ég hef fengið bara að vera í í kór síðan við komum hér út.
Kristján er að kenna á Seminarinu, seinni tvær vikurnar af námskeiðinu sem hann var að kenna síðast þegar við vorum hér. Við Davíð Ómar erum tvö heima og höfum það hugglegt saman. Við vorum nú eitthvað búin að baka að smákökum og svoleiðis í Voító en við ætlum aðeins að bæta við. Piparkökurnar voru bakaðar og skreyttar í Voító og rétt svo lifðu ferðina til Addis. Það voru einhverjar sem brotnuðu en þær eru alveg jafngóðar á bragðið. Piparkökuhúsið ætlum við að gera hér. Tók ekki sénsinn á að fara að ferðast með það þessa 600 km á misgóðum vegum! Krakkarnir voru búin að vera á fullu að búa til jólakort til nánustu ættingja sem send verða út fljótlega og skila sér vonandi. Þau voru mjög spennt að byrja á jólaundirbúningnum. Við komum frá Jinka 28. Nóvember og það fyrsta sem þau spurðu um þegar við renndum í hlað í Gisma var: „Meigum við núna hlusta á Jóla- Ladda?"
Segi það í bili
Læt vonandi heyra frá mér fljótlega aftur.
„Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Ungir menn þreytast og lýjast og æskumenn hníga en þeir sem vona á Drottinn fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki."
Jesaja 40: 29- 31
Förum til Arba Minch á morgun og þaðan til Voító á sunnudag. Biðjið endilega fyrir okkur. Það er ekki bara bara að ferðast hér í þessu landi þar sem allt er alltaf fullt af fólki og búfénaði á veginum. Mestur hluti leiðarinnar er á sæmilegum vegi en um 150km eru mjög slæmir. Þið megið líka biðja fyrir því að allt megi ganga vel í Voító, að við meigum vera frísk og verði forðað frá slysum og hættum.
Smá gullkorna að lokum:
Krakkarnir sem búa hér á lóðinni eru með allskonar dýr sem gæludýr m.a. hænur, dúfyr og kanínur. Jóel er mjög upptekinn af þessu.
Jóel: Mamma það var dauð hæna þarna úti
HVS: Nú hvernig drapst hún
JK: Hún bara dó. Hænur deyja bara svona upp úr þurru. Mamma hvernig fara Eþíóparnir eiginlega að því að halda lífi í hænunum?
Jóel: Mamma við drápum mongoos.
HVS: Hverjir? Þið strákarni?
JK: Já
HVS: Nei nú ertu að bulla ´Jóel. Segðu mér nú satt, þið hafið ekkert getað drepið neinn mongoos.
JK:Jú víst, við bara drápum hann
HVS: Jóel ertu að segja satt?
JK: Jæja OK. Við SÁUM allavega monoos!
Starfið í Gisma gengur vel og við höfum fengið að upplifa mikla blessun núna undanfarið. Nýlega var kosin ný safnaðarstjórn sem við erum mjög ánægð með. Einn daginn komu nokkur úr söfnuðnum að máli við Kristján því þau vildu reyna að ná með fagnaðarerindið til fleira fólks í Voítódalnum. Kristján fór svo með þeim einn sunnudag og heimsótti tvö þorp hinum megin við fjallið. Konurnar höfðu sett saman lítinn kór og svo fóru þau til að tala við fólkið, uppörva þá kristnu og til að reyna að ná til fleiri. Vikuna á undan hafði Aseffa sem er evangelistalærlingur í Gisma, dvalið á þessum stöðum og verið með fólkinu.
Filló og Aseffa eru tsemaimenn sem eru komnir tilbaka eftir nám. Sirpa er ein af kristnu konunum í Gisma. Þessi þrjú hefur Guð kallað til að starfa meðal barnanna í Gisma. Þau komu til mín og sögðust vilja vera með í barnastarfinu. Þau túlka fyrir mig þegar ég tala við börnin og þegar ég er í burtu sjá þau um starfið. Fyrir mér er þetta stórkostlegt bænasvar. Frá því að við komum fyrst til Voító hef ég beðið fyrir því að Guð kallaði fólk til starfa meðal barnanna í Gisma. Ég hafði miklar áhyggjur af að enginn myndi taka við starfinu þegar við færum heim næsta sumar en svo gaf Guð mér frið fyrir því að hann myndi sjá um þetta og nú hefur hann sent þetta fólk.
Meira má lesa um þetta í næsta tölublaði Kristniboðsfrétta sem allir geta gerst áskrifendur að án endurgjalds (sjá http://www.sik.is/)
Fleiri fréttir af krökkunum:
Jóel var ekki fyrr búinn að póstleggja ástarbréf með bónorði til Júlíu vinkonu sinnar í Svíþjóð þegar hann skrifaði annað eins bréf til Sigrid Helene vinkonu Margrétar Helgu hér úti. Hún þurfti smá umhugsunartíma (svona hálftíma eða svo) en ákvað svo að slá til svo það var brúðkaup hér á laugardaginn!! Hann sagðist einu sinni ætla að eignast margar mömmur, átti við eiginkonur, svo hann fengi mörg börn! Það læra börnin það sem þau sjá í kringum sig. Í Voító eiga karlarnir jú fleiri en eina konu!
Eitt sinn þegar við sátum í bílnum komst eitthvað til tals þetta með Habesha (Eþíópa) og Ferenge (útlendiga) Ég spurði Jóel:"Hvort ert þú habesha eða ferenge?" Jóel:"Mamma þetta er allt of erfið spurning, ég get ekki svarað þessu."
Þetta er nú það sem er dæmigert fyrir mörk TCK (Third Cultural Kids) eins og það kallast þau vita ekki alveg hvar þau tilheyra, eru einhversstaðar mitt á milli. Dagbjartur Elí var hins vegar alveg með það á hreinu að hann væri habesha (Eþíópi) og Margrét Helga lagði áherslu á það að hún væri sko ferenge (útlendingur)!  Þá vitið þið það!
Nú fer Addisdvöl að ljúka í bili. Við leggjum í hann til Arba Minch á laugardaginn og verðum svo koin til Voító á sunnudag.
Núna kemur með okkur kennari frá Bingham sem er yfir heimaskólanum (Homeschool coordinator) og ætlar að hjálpa mér aðeins með kennsluna. Hún verður hjá okkur í viku. Það verður gaman. Við komum svo aftur til Addis í kringum 6. des svo krakkarnir geti tekið þátt í jólaverkefnum í skólanum og Kristján klárar að kenna námskeiðið sem hann er að kenna á Seminarinu. Hvort við verðum svo i Addis eða í Awasa um jólin erum við ekki alveg búin að ákveða. Það verður ekkert frí ef við erum í Voító þannig að við verðum ekki þar um jólin en verðum þar um áramótin.
Það er því ekki við neinu bloggi að búast alveg næstu vikurnar en þangað til bið ég ykkur Guðs blessunar
Hér koma smá fréttir
Við erum núna í netsambandi í Addis svo loksins, loksins kom ég mér í  að skrifa. Þetta kemur samt í allavega tveimur hlutum svo það verði ekki allt of mikið í einu. Njótið vel og endilega kvittið í gestabókina!
23. október 2009
Núna er ég loksins komin í sæmilegt bloggstuð svo það er best að koma sér að verki. Já þið verðið að fyrir gefa, ég hef verið eitthvað voðalega andlaus þessi fáu skipti sem ég hef verið í netsambandi og ekki fundist ég hafa um neitt skemmtilegt að skrifa. En nú er ég í Addis og því líkur léttir að koma í kaldara loftslag. Hitinn og rakinn í Woitó er búinn að vera alveg hræðilega erfið undanfarið svona eins og að búa í 40°heitu gróðurhúsi! Það hefur bara rétt og slétt verið erfitt að ná andanum stundum. Ég hef ekki upplifað akkúrat svona í Woító áður þótt ég geri ráð fyrir að þetta ´sé kanski ekkert óvenjulegt. Við erum búin að bíða eftir almennilegri rigningu LENGI en ekkert gerist bara þung ský sem bera með sér raka og kanski rignir pínulítið svo fer sólin aftur að skína og hitinn verður aftur óbærilegur. En kvöldið áður en við keyrðum núna til Addis rigndi aðeins meira en áður svo við biðjum og vonum að það sé komin almennileg rigning núna. Ef ekki fer að rigna almennilega getur ástandið orðið mjög erfitt. Uppskerubrestur og dýrin deyja,  sem hefur ekkert annað í för með sér en hungursneyð. Það er því bænarefni að það komi rigning í Gisma. Það hefur rignt í nágrannaþorpum og bæjum en ekki akkúrat í Gisma.
Best ég byrji á byrjuninni. Ferðin út eftir frábært sumarfrí heima. Gekk vonum framar. Ég á svo yndisleg og dugleg börn, þó ég segi sjálf frá. Það er ekki sjálfgefið að sólarhrings ferðalag milli heimsálfa með fjörgur börn á aldrinum 2- 8 ára gangi svona vel. En við vitum líka að við erum ekki ein, við erum allan tímann í hendi Drottins.
Fyrstu vikurnar í Addis voru hins vegar erfiðar af ýmsum sökum sem ég ætla ekki að tíunda hér, enda eru þær að baki og með Guðs hjálp vinnum við það verk sem Hann hefur ætlað okkur hér.
Reyndar eitt af því sem kom eins  og áfall var að Davíð Ómar veiktist fimm dögum eftir að við lentum í Addis. Hann kstaði stanslaust upp í heilan sólarhring og var svo alveg listar laus í marga daga. Svo sló út með því að hann var kominn með blóðugar hægðir daginn áður en við ætluðum suður til Woito. Það við frestuðum því ferðinni og fórum með prufur í ransókn. Ekker kom út úr þeim en daginn eftir var hann skyndilega frískur og hefur verið síðan. Er duglegur að borða og stækkar og dafnar. Fyrir okkur er þetta ekkert annað en blessun og stórt bænasvar.
Eins og ég sagði er loftslagið búið að vera erfitt eiginlega síðan við komum í byrjun sept. Stundum koma daga sem ég skil bara ekki hvernig ég á að fara að því að búa þarna og reyna að vera í fullri vinnu og óft langar mig met að gefast upp. En þá rífur Guð mig á fætur og hjálpar mér í gegnum þetta. Stundum hugsa ég, þetta er náttúrulega bilun, samtímis að kenna 3. Og 2. Bekk, forskóla og vera svo með 2 ára snúð sem heldur að hann geti allt og vill líka vera í skóla. Svo þarf líka að elda mat, baka, reyna að halda húsinu í horfinu og í viðbót við það að hafa stjórn á heimsóknum barnanna úr þorpinu. Að halda húsinu hreinu og í horfinu er nú bara kapítuli út af fyrir sig. Fyrir það fyrsta er það mjög opið til þess að allur sá litli andvari sem er í Voító komist örugglega inn en það hefur líka í för með sér að litlir sandstormar sem koma gjarnan sérstaklega í kirngum regntímann, fara beint í gegnum húsið sem þíði að allt inni verður loðið af ryki og sandi á tveimur mínútum. (Þetta gerist yfirleitt alltaf þegar ég er nýbúin að þrífa og skúra, eða allvega finnst mér það!) Svo á ég tvo litla gorma sem geta auðveldlega sett allt á hvolf á korteri. Málið er að þá fæ ég allavega smá frið til að kenna tveimur elstu svo þannig verður þetta bara að vera! Við ákváðum að færa skólann frá bílskúrnum og upp í húsið okkar, þannig að nú kenni ég bara í stofunni. Þá get ég líka sinnt einhverjum heimilisstörfum á meðan ef færi gefst og litlu strákarnir geta leikið sér inni í herbergi á meðan.
Ég þarf oft að minna mig að versið sem hangir í ramma yfir rúminu mínu sem ún systir mín gaf mér í kveðjugjöf þegar við fyrst fórum út:"Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gjörir"
26.okt
Þá eru þau þrjú elstu farin í skólann, Kristján að kenna á Mekane Yesus seminarinu og við Davíð Ómar höfum það huggulegt hér saman. Ekki svo oft sem hann fær alla athygli mömmu sinnar óskerta.
En hvert var ég nú komin. Já ég er búin að lýsa svona nokkurnvegin aðstæðum okkar í Voító núna þótt það sé alltaf erfitt að gera það nákvæmlega með orðum. Það er sumsé allt gott að frétta af börnunum og okkur líka þótt hver dagur sé áskorun. Margrét Helga er alltaf sami lestrarhesturinn og ses oft tvær kaflabækur á einum degi. Hún hefur því miður kanski ekki mikið annað að gera þar sem það eru ekki margar stelpur sem hún getur leikið við í Gisma. Hún var í vor búin að eignast eina vinkonu en hún þarf oft að hjálpa mömmu sinni og vinna heima þannig að það er ekki oft sem þær geta leikið saman. Margrét Helga er reyndar mjög dugleg að hjálpa til heima líka. Henni finnst gaman að stússast með mér í eldhúsinu og er líka dugleg að passa minnsta bróður sinn. Hún kvartar ekki og virðist líða vel þrátt fyrir að það sé ekki mikið félagslegt umhverfi. Henni finnst gaman í skólanum og er íslenskan uppáhaldsfagið. Jóel hefur farið mikið fram í skólanum og er farinn að vera nokkuð sleipur í lestri og er meira að segja farinn að lesa líka á ensku. Annars finnst honum stærðfræðin skemmtilegust. Hann leikur mest við syni Dilló nágranna okkar og oft sjáum við hann ekkert frá hádegi og þar til komið er fram í myrkur. Ergama Dillóson er besti vinur hans og þeir bralla ýmislegt saman. Ergama býr til boga og örvar sem Jóel er að æfa sig í að skjóta af, svo eru þeir í því að búa til gildrur og reyna að lokka einhver dýr til sín sem ég kann ekki alveg nánari skil á. Stundum fær Jóel líka að fara með á kvöldin að sækja geiturnar upp í fjall. Dagbjartur Elí fær líka stundum að vera með þeim eða þá hann leikur við einhverja aðra strák sem koma í heimsókn. Margrét Helga og Jóel eru bæði farin að spila á blokkflautu og píanó og við reynum að æfa okkur saman reglulega. Um daginn héldu þau smá tónleika fyrir Hönnu sem er danskur kristniboði sem býr í Jinka. Dagbjartur Elí hefur mikinn áhuga á að læra stafi og tölur og vinnur í forskólabókunum sínum af kappi. Hann hefur líka sínar eigin lestrarbækur sem eru myndlestrarbækur. Það er mjög mikilvægt. Davíð Ómar vill líka vera í skóla og hefur sína eigin stílabók sem hann skrifar og litar í eins og hann vill. Þeir tveir yngstu eru orðnir voða duglegir að leika sér saman og reynda þau öll fjögur. Um daginn settu þau upp af eigin frumkvæði, leikrit um Dodda og félaga. Krúttlegasta leikrit sem ég hef séð held ég! Dagbjartur Elí sagði við mig um daginn:"Mamma, það er svo gaman að eiga svona marga krakka!" (Þar átti hann við systkini sín)
Framhald fljótlega.....
Jæja, þá er þetta sumarfrí á enda. Við leggjum af stað héðan kl. 4:30 í fyrramálið, förum í loftið kl. 7:40, bíðum 10 tíma á Heathrow og lendum svo eftir næturflug, í Addis kl. 8:10 að staðartíma á föstudagsmorgun. (5:30 að íslenskum tíma). Þetta verður langt og strangt ferðalag en við vitum að englar Guðs vaka yfir okkur á leiðinni og margir sem biðja fyrir okkur.  Þetta er búið að ver ayndilsegt sumar og hlökkum til að takast á við komandi ár.  Það eru auðvitað blendnar tilfinningar við að vera að fara, alltaf jafnerfitt að kveðja, en nú er þetta ekki langur tími, verðum komin heim aftur um mitt næsta sumar.
Það er búið að vera mikið að gera þessa síðustu viku. Við héldum afmælisveislu fyrir krakkana á föstudaginn, svaka fjör, í kristniboðssalnum því það er víst ekki hægt að stóla á veður hér á Íslandi. Þetta var afmælisdagur Margrétar Helgu en hún var svo elskuleg að leyfa bræðrunum að eiga veisluna með sér því þeir eiga aldrei afmæli á Íslandi. Á laugardaginn hittust svo systkini mömmu ásamt afkomendum og var það svaka fjör líka. Svona mætti lengi telja, alls kona hittingur með vinum og ættingjum.
En nú höldum við af stað til Eþíópíu  á ný. Þið megið muna eftir okkur í bænum ykkar, ferðin, skólinn hjá krökkunum starfið í Woító, já allt sem er framundan.
Drottinn blessi ykkur!
Nú er vika þar til við leggjum í hann á ný. Þetta er búið að vera frábært sumarfrí og gott að koma heim og fá að hvílast svona vel. Nú er ég eiginlega bara farin að hlakka til að fara út aftur. Planið er að við flytjum heim a.m.k í bili, næsta sumar svo nú er þetta ekki langur tími sem við verðum úti. Eitt ár líður alveg ótrúlega fljótt. Það er líka dýrmætt að fá að klára tímabilið með nýjum kröftum, ekki vera alveg búin á því á lokasprettinum. Við biðjum núna bara fyrir því að öll fjölskyldan fái gott ár í Eþíópíu og við meigum fara þaðan sátt og með góðar minningar. Við erum opin fyrir því að fara svo aftur út en það er ekki alveg ákveðið ennþá. allavega verðum við 1- 2 ár heima. Við erum líka alveg farin að vera tilbúin í það.
Nú er nóg að gera við að pakka, ég er búin að kaupa jólahangikjötið og ýmislegt fleira sem þarf að hafa með út. Dagurinn í dag fer í að undirbúa afmælisveislu. Margrét Helga verður 8 ára á morgun en hún leyfir bræðrum sínum líka að eiga afmælisveisluna með henni þar sem þeir eiga aldrei afmæli á Íslandi. Það verður svaka fjör!
Ett gullkorn í lokin:
Dagbjartur Elí er með mjög stóra hálskirtla og hrýtur því mjög mikið. Ég hef látið lækni kíkja á hann til að meta hvort taka þyrfti kirtlana sen það þarf nú vonandi ekki. Við vorum svo að lesa Tumi fer til læknis um daginn og þar skoðar læknirinn í hálsinn á Tuma, þá fékk ég þessa spurningu frá hnoðranum:" Mamma hrýtur hann?"
"Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Fyrir því hæðumst við eigi þótt jöðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins" Sálm.46:2-3
Bara smá fréttir af okkur.
Við erum búin að eiga alveg yndislegt sumarfrí hér heima og höfum náð að slaka vel á og uppbyggjast bæði andlega og líkamlega. Nú fer að styttast í brottför á ný og eigum við bókað flug út 20. ágúst og erum bara farin að verða tilbúin að takast á við þetta síðasta ár í bili.
Það sem stendur upp úr hjá mér eftir þetta sumar að ég hef fengið að uppbyggjast og uppörvast í trúnni, eitthvað sem ég þurfti mjög á að halda. Við áttum góða daga á Löngumýri með kristniboðsvinum og svo fékk ég gott tækifæri til að syngja með Gospelkór Reykjavíkur, æfingar, brúðkaupið hans Sigga Bjarna og síðast en ekki síst tónleikar með André Crouch í Kirkjulækjarkoti núna um verslunarmannahelgina- stórkostlegt hreint út sagt og ég á eiginlega bara ekki orð tið að lýsa því!
Við höfum líka haft góðan tíma með vinum og fjölskyldu þó svo að margir hafi verið á flakki vegna sumarfría og enn einhverjir sem við höfum ekki náð að hitta. En nú er ekki svo langt þangað til við komum aftur til að vera og þá verður tími til að endurnýja gömul kynni.
Við erum búin að fara í sumarbústað tvisvar, skruppum í Skóginn um verslunarmannahelgina þar sem ég (meðal annarra) hljóp í skarðið fyrir Keith Reed,  sá um barnakór sem var bara mjög gaman, fórum eins og áður sagði á Löngumýraramót og bara margt fleira. Krakkarnir hafa unað sér vel, notið þess að fá að vera með ömmum og öfum og frændsystkinum, farið í bíó, leikhús, Húsdýragarðinn og svo mætti áfram telja.
Veðrið er búið að vera frábært, gott fyrir okkur Afríkubúa sem erum vön hitanum, það á eftir að verða spennandi að upplifa vetur hér aftur!
Verið Guði falin!
"Verið ávalt glaðir í Drottni, ég segi aftur, verið glaðir!" Fil.4:4
Jamm og jæja!
Pabbi var að benda mér á að það eru alltaf einhverjir að detta inn á síðuna svo ég ætti nú kanski að henda inn smá fréttum af okkur. Reyndar var ég búin að skrifa helling sem ég ætlaði að setja inn þegar við vorum í Addis síðast en þá var alltaf rafmagnslaust og ekki hægt að komast á netið svo ekkert varð af því.
Við komum ss. heim 26. maí eftir sólarhrings ferðalag, þremur vikum fyrr en áætlað hafði verið vegna veikinda Davíðs Ómars. Það var nefnilega þannig að hann fór að kasta upp blóði og við brunuðum í flýti til Arba Minch. Þetta var í kringum 10. maí. Þegar þetta gerðist var Kristján akkúrat  að heimsækja evangelistana hinum megin við fjallið og það tók mig smá tíma að ná í hann. Ég náði í lækninn okkar í Addis sem sagði okkur að koma honum undir læknis hendur sem fyrst. Ég náði loks í Kristján og við mættumst í Bíræle og fórum svo til Arba Minch þar sem Bernt Lindtjörn, norskur læknir er starfandi.  í fyrstu vorum við að velta fyrir okkur að ég kæmi bara með hann heim með næstu vél en þetta var ekki eins alvarlegt og það leit út fyrir. Það var reyndar ekkert hægt að rannsaka mikið þarna í Arba Minch en eftir nokkurra daga bið ákváðum við að fara í nokkra daga aftur til Woító og svo öll saman heim. Það var í samráði við Kjell Magne Kiplesund lækni NLM að ákveðið var að við færum fyrr heim svo Davíð Ómar fengi lengri tíma hér heima þar sem hann væri ekki útsettur fyrir amöbum og sýkingum. Hann hefur meira eða minna verið lasinn í maganum frá því hann fæddist og af þeim sökum ekki vaxið eðlilega. Hann hefur aldrei náð að jafna sig almennilega á milli og því ekki nærst eðlilega. Hann fór beint í rannsóknir hér þegar við komum heim uppi á barnaspítala en ekkert kom út úr þeim nema að það er einhver smá röskun á einu vaxtarhormóni sem stafar af því að hann hefur ekki nærst eðlilega á einhverju tímabili. Það er ekkert alvarlegt og ekkert til að hafa áhyggjur af en verður samt tékkað aftur næsta sumar.
Við erum ss. búin að vera hér í næstum mánuð og alveg ótrúlega kærkomin hvíld. Við vorum orðin mjög þreytt og lúin og þakklát fyrir að fá að koma heim til að hlaða batteríin fyrir síðustu törnina úti í bili. Það var mikið álag að flytja og venjast breyttum aðstæðum í Woító auk þess sem hlutir eins og veikindi Davíðs Ómars, sorgarferli Dagbjarts Elí og ísskápsleysi gerðu ekki hlutina auðveldari.
Við höfum mikið verið með fjölskyldum okkar þessar fyrstu vikur og erum svona að vinna í að reyna að hitta sem flesta vini og kunningja. Það er alveg ótrúlega gaman að hitta alla aftur og gott að þurfa ekki að vera í stressi þar sem við verðum hér alveg til 20. ágúst. Það er ótrúlega notalegt að geta opnað ísskáp og fengið sér mat og geta skroppið út í búð ef mann vantar eitthvað, geta gengið næstum hvert sem mann langar til, farið í sund, borðað ís osfr. þvílíkur lúxus!!
Við búum heima hjá foreldrum mínum svo hægt er að hafa samband við okkur þangað.
Reyni kanski að láta í mér heyra eitthvað svona þegar líður á sumarið, kanski maður fari að skoða þessa fésbók eitthvað líka sem er algjörlega ný tækninýjung fyrir mér!
Eigið gott sumar og njótið þess að búa á þessu góða og fallega landi sem Guð hefur gefið okkur!
23. apríl
Það er farið að líða alltaf
lengra og lengra á milli þess sem ég skrifa svo ég ætla ekkert að vera að
afsaka neitt eða lofa neinu fögru. Það er bara svona. Mikið að gera og mikil
ferðalög, lítið um netsamband og svo framvegis.
Ég vil byrja á að þakka fyrir
góðar kveðjur á síðuna. Það er alltaf uppörfandi þótt það sé bara stutt kveðja
að fá smá lífsmark frá vinum og vandamönnum. Það má líka alltaf senda okkur
tölvupóst bara muna engin stór sköl eða viðhengi eða fjöldapóst því þá stíflast
allt hjá okkur.
Það hefur gengið á ýmsu síðan ég
skrifaði síðast. Það sem hefur kanski sett mestan svip á síðustu vikur er að
við lentum í bílslysi. Þ.e. við lentum í að keyra á komu þegar við vorum á
leiðinni til Woító eftir nokkra frídaga í Jinka. Ég hef oft hugsað að það sé
eiginlega ekki spurning hvort heldur hvenær þetta myndi gerast því það er fólk
allsstaðar og það er eins og fólkið hér skynji ekki hættuna sem stafara af
bílum, hvort sem það er að keyra þá, sitja sem farþegi eða gangandi vegfarandi.
Fyrstu viðbrögðin voru auðvitað að ahuga hvort það væri í lagi með konuna. Að
sjálfsögðu fylktist fólk að úr öllum áttum og þegar svona gerist verða viðbrögð
fólks svo ofsafengin hér. Ég held að það hafi sjokkerað krakkana mest hvað fólkið
í kring var æst og reitt. M.a. var maður sem beindi boga að Kristjáni og margir
voru tilbúnir með grjót í höndunum. Það er næstum eins og fólk skilji ekki að
þetta var slys og ekki gert með ásetningi. En við tókum konuna upp í bílinn og
keyrðum með hana beina leið aftur til Jinka á spítalann þar sem Sverrir
Ólafsson (sonur Jóhannesar Ólafssonar kristniboðslæknis) læknir tók á móti
okkur. Hann skoðaði konuna og í ljós kom að hún var algjörlega ósködduð, ekki
ein skráma. Við lofum Guð fyrir það og lítum á það sem hreint kraftaverk. Við
gistum svo bara aftur í Jinka. Kristján keyrði svo konuna heim ásamt Sverri og
tveimur lögreglumönnum. Kristján þurfti auðvitað að gefa skýrslu um það sem
gerðist. Ég var með krakkana á gestahúsinu í Jinka og þau voru dáldið óróleg,
sérstaklega Margrét Helga sem hélt að einhver ætlaði að gera pabba eitthvað
ill. Kristján kom svo loks til baka eftir að hafa farið með konuna heim til sín
og sagði þá Margréti Helgu að hann hefði hitt aftur manninn sem beindi boganum
að okkur og þeir höfðu faðmast. Þá róaðist hún aðeins. Þegar svona gerist
hugsar maður ósjálfrátt um eigið skinn. Við höfum heyrt margar sögur af
fangelsisvistunum og dómsmálum í kjölfar slysa sem þessa og það er ekkert grín
að lenda í svoleiðis hér. En það er allt útlit fyrir að þetta mál sé búið og
við lofum Guð og þökkum fyrir það. Áfallið kom síðan eiginlega ekki fyrr en
nokkrum dögum seinna. Ég var mjög langt niðri um tíma en það hjálpaði að tala
við mömmu og pabba og fleiri heima. Þetta var erfiður tími fyrir okkur bæði og
ekki hjálpar að við erum farin að finna fyrir mikilli þreytu svona almennt. En
við ákváðum síðan að fara nokkra daga til Awasa áður en við komum hingað til
Addis núna til að aðeins slappa af og það var sko sannarlega gott. Bara daginn
sem við komum til Awasa leið mér betur og er bara í góðu jafnvægi núna. Við
erum líka farin að hlakka til að koma heim í frí í sumar. En við erum líka
þakklát fyrir að fá að búa og starfa í Woító þó það sé langt frá því að vera
auðvelt en við fáum svo sannarlega að finna og upplifa nærveru Guðs og varðveislu
í stóru sem smáu. Við höfum fengið að upplifa bænasvör varðandi börnin okkar
núna mjög áþreifanlega. Dagbjartur Elí sem átti svo erfitt í haust og alveg
fram að jólum er eins og nýtt barn, hann er orðinn svo öruggur með sjálfan sig,
svo duglegur í leikskólanum og sáttur heima í Woító. Asnakú er núna hjá okkur
og passar Davíð Ómar þessar tvær vikur sem við verðum í Addis. Dagbjartur Elí
fer í leikskólann á morgnana og hittir svo Asnakú þegar hann kemur heim. Það að
hann fer glaður í leikskólann vitandi af Asnakú hér sýnir bara hvað hann er
sáttur og öruggur. Svo hleypur hann fangið á Asnakú sinni þegar hann kemur
heim! Ég var búin að hafa áhyggju af Margréti Helgu undanfarið því hún grét
mikið og sagðist ekki vilja fara aftur á Bingham því hún ætti enga vini og allt
væri svo erfitt og erfitt að skilja. En það hefur allt gengið eins og í sögu.
Það er svo gaman hjá henni í skólanum og gaman að ver með hinum stelpunum og
ekkert vandamál með námið. Það er mikill léttir fyrir okkur hvað þeim líður vel
og gengur vel.
30. apríl
Jæja best að reyna að klára þetta
áður en við förum aftur suðureftir. Netið lá niðri hér í næstum heila viku
þannig að ég hef ekkert verið að flýta mér að skrifa.
Við höfum notið þess mjög vel að
vera í Addis núna í þetta skipti. Allir nokkurnvegin frískir sem hefur aldrei
gerst áður í Addis ferðum. Bara eitthvað smá kvef, svo er líka ekki eins kalt
núna hér. Á mánudag förum við svo til Arba Minch og þaðan áfram til Voító þar
sem við verðum í um 4 vikur áður en við komum svo heim á klakann.
Ég reyni að senda lífsmark frá
okkur áður en af því verður en eins og ég sagði lofa ég engu...
„Því að þín vegna býður hann út
englun sínum, til þess að gæta þín á öllum vegum þínum"                    Sálm. 91:11
Jæja kominn tími á smá fréttir eða hvað???
Við áttum frábært jólafrí í Awasa og náðum að slappa vel af og safna kröftum. Þetta var orðið löngu þarft frí. Það var heilmikil breyting að flytja frá Addis til Voító og magt sem maður þarf að aðlagast og átta sig á. Það er ekki bara alltaf einfalt að búa þarna þótt okkur líði vel og finnist við vera á rétum stað. Við gerðum svosem mest lítið í jólafríinu annað en að slappa af, vera í sundi og sólbaði og borða góðan mat. Bara svona eins og alvöru frí á að vera ekki satt? Á aðfangadag var guðsþjónusta í salnum á ferieplassen þar sem ég og Margrét Helga og Jóel sungum og ég spilaði bæði á flautu og píanó. Svo var hamborgarhryggur í matinn með öllu tilheyrandi. Krakkarnir fengu fullt af pökkum og við reyndar líka. Við höldum Þórsgötuhefðinni að syngja saman jólasálma eftir matinn áður en pakkarnir eru opnaðir. Það getur verið erfitt fyrir lítið fólk að bíða en þeim finnst nú líka gaman að syngja og við vorum búin að æfa jólasálmana alla aðventuna.  Á jóladag var svo hangikjötið á boðstólum. Það er nú lítið um jólaboð hjá okkur hér úti. Það er margt gott við jólin hér úti en þetta er samt alltaf sá tími sem við söknum fjölskyldu og vina heima hvað mest. Mér finnst ekkert auðveldara með hverju árinu sem líður. En það kemur nú að því ef Guð lofar að við fáum að halda jól með fjölskyldunni. Á gamlársdag var töfrasýning í salnum í Awasa. Það var danskur strákur sem hefur lært gospel magic sem var með sýningu fyrir krakkana og við fullorðnu höfðum líka gaman af. Allir krakkarnir fengu svona fígúrublöðrur.  Kristján keypti nokkur blys og eina rakettu og stjörnuljós svo við gætum sprengt gamla árið. Eins og sum ykkar vita eru ekki áramót hér á sama tíma og hjá okkur þar sem Eþíópía fylgir ekki sama tímatali.
4.Janúar héldum við svo til baka til Voító. Þar tók á móti okkur ónýtur ísskápur og 42 ° hiti! Ekki alveg það skemmtilegasta en gekk nú betur en það kanski hljómar en þetta var frekar sveitt verð ég að segja! Aldrei þessu vant höfðum við keypt slatta af kjöti, osti, smjöri og fleiri kælivörum. Ég bakaði ostabollur og ýmislegt fleira til að reyna að bjarga ostinum en restina, kjötið og smjörið urðum við bara að gefa. Þetta var all frosið þegar við komum með það en þegar hitinn er yfir 40°gráðum á daginn og fer ekki undir 32°á nóttunni geymist svona ekki lengi eins og þið getið ímyndað ykkur! Nágrannarnir urðu að vonum glaðir á fá kjöt í jólamatinn, því þetta var einmitt á eþíópsku jólunum. Eftir 10 ísskápslausa daga fórum við í skreppitúr til Jinka til að kæla okkur aðeins niður. Það fyrsta sem við gerðum þegar við komum þangað vara að setjast  niður á veitingahúsi og fá okkur kalda kók og ambó (náttúrlegt ölkelduvatn). Það var dásamlegt! Við vorum tvær nætur í Jinka þar sem loftið er talsvert kaldara en í Voító og ísskáparnir virka! Þar hittum við Björgu Jónsdóttur læknanema og Auði vinkonu hennar sem voru verknámi á sjúkrahúsinu undir leiðsögn Sverris Ólafssonar (sonar Jóhannesar Ólafssonar, kristniboða til margra ára hér í Eþíópíu), sem er nokkra mánuði núna að starfa á sjúkrahúsinu í Jinka. Allt í einu voru því Íslendingar orðnir í meirihluta á kristniboðslóðinni í Jinka, eitthvað sem ekki gerist á hverjum degi. Það er alltaf gaman að hitta Íslendinga og spjalla við fólk á ástkæra, ilhýra.Björg og Auður komu svo með okkur til Voito og fengu að fara með í bólusetningarferð og fylgjast með á sjúkraskýlinu hér meðal annars. Svo kom enn einn Íslendingurinn hingað í lok janúar, Árni Torfason atvinnuljósmyndari, sem er sambýlismaður Auðar og kom hann og tók mikið af góðum myndum.
Í Jinka fengum við líka ráð frá fyrrum Voító kristniboða Mariann Espeland, um hvernig kæla má vatn ísskápslaus. Þegar við komum heim var bara öllum vatnsflöskum skellt í bala með vatni á gólfið og blautum taubleyjum vafið utan um. Þð er ótrúlegt hversu kalt vatnið verður við það þrátt fyrir lofthitann. Það er nefnilega það sem maður saknar mest, að fá ekki eitthvað kalt að drekka. Það er frekar óskemmtilegt að drekka 38° heitt vatn í svona hita, þá er skárra að drekka sjóðandi heitt te, ég segi það satt! Svo meiga ekki vera neinir matarafgangar eða opnar maioneskrukkur eða lifrakæfubox því það eyðileggst allt á einni nóttu! Við létum auðvitað yfirmanninn í Addis vita og það var farið á fullt að leita að gas eða kerosín ísskáp en niðurstaðan var sú að svoleiðis nokkuð er bara ekki til sölu neinsstaðar í Addis Abeba. En við létum okkur þetta ísskápsleysi hafa í þrjár vikur því þá var komið að því að við fæum á kristniboðaráðsstefnu í Awasa.
Að venju (fyrir utan eitt skipti) gistum við í tjaldi. Krakkarnir hafa sjaldan sofið betur. Okkur fannst reyndar dáldið kalt að koma til Awasa en vorum með ullarföt með okkur svo það var bara að klæða sig. Það var nú ekki kanski mjög kalt svona á íslenskan mælikvarða en komandi úr hitanum í Voító er kalt í Awasa! Við sátum á morgnana dúðuð í ull og flís og furðuðum okkur á hvernig við lifðum af í Skaftafelli fyrir tveimur árum þegar hitinn fór niður fyrir frostmark á nóttunni! (reyndar hélt ég í alvöru þá að ég myndi frjósa í hel!)
Ráðstefnan var ágæt, alltaf erfiðar og þreytandi svona fundarsetur finnst mér og ekki hjálpar að allt fer fram á ensku sem fólk er missleipt í og því oft erfitt að halda þræði í umræðum og öðru. Þetta er víst út af Finnunum sem eru reyndar ekki margir en skilja flestir litla sem enga norsku. Mér finnst þetta stór galli því þetta skerðir gæði umræðnanna mikið. Það voru mjög góðir biblíulestrar á morgnana sem voru í höndum Espen Ottesen sem er ritsjóri Utsyn sem er fréttablað NLM (sambærilegt Kritniboðsfréttum SÍK) Það var alveg frábært að hlusta á hann. Kvöldstundirnar voru líka góðar. Krakkarnir voru alsæl í öruggum höndum Fjellhaug nema. Þaðan kemur orðið hópurfrá biblíuskólanum á hverju ári og sér um barnaprógrammið. Dagbjartur Elí var reyndar með pínu vesen, vildi bara mömmu. Í fyrra var hann alveg á fullu með í barandagskránni en þá var líka Asnakú með. Núna vorum við ekki með neina baranpíu en við fengum Meseret sem var barnapía hjá Ann Kristin og Geir vinum okkar lánaða líka fyrir Davíð Ómar. Hún var barfóstra hjá þeim í Addis svo strákarnir þekkja hana og hún er mjög dugleg. Við vorum að vona að Asnakú kæmi þar sem húner að passa hjá annarri norskri fjölskyldu núna en húna gat ekki komið þar sem hún er byrjuð í kvöldskóla, kennaranámi, sem er bara frábært. En allvega þetta var bara fín ráðstefna og allir frískir. Svo fórum við beint þaðan til Addis þar sem við vorum í tvær vikur.
Krökkunum finnst alltaf mjög gaman að koma til Addis og fá að vera í skólanum. Magrét Helga og Jóel eru alveg ein og óstudd núna og gengur mjög vel. Þau reyndar fylgja ekki alveg alltaf öllu í öllum fögum og voru núna með smá áhyggjur af því að þau kunnu ekki fargmöldrun eða marfnöldrun eða hvað það nú heitir! Ég sagði þeim að þð væri nú bara allt í lagi, því kennararnir þeirra á Bingham vita alveg að við erum ekki að gera nákvæmlega það sama og þau í skólanum okkar í Voító þótt ég reyni eftir bestu getu að fara einhvern milliveg á mill íslensku náskránnar og þeirrar bresku sem þar er notuð. Ef þau eru eitthvað óörugg meiga þau alltaf taka upp íslensku bækurnar sínar og vinna í þeim i skólanum. Ég sagði líka að við gætum bara kíkt á marföldunina þegar við kæmum til Voító sem við höfum og gert og mér sýnist þau nú bara orðin nokkuð sleip í henni!
Dagbjartur Elí fór líka í KG1 á hverjum degi og ég ákvað að fara með hönum þar sem hann er búinn að vera svo óöruggur undanfarna mánuði vegna allra breytinganna sem orðið hafa á lífi hans. Ég var inni hjá honum alla fyrri vikuna en seinni vikuna var hann að mestu einn. Ég var bara með honum fyrta klukkutímann, þangað til búið var að lesa upp og svona, (honum finnst dáldið erfitt að láta lesa sig upp, aðeins of mikil athygli! Líkist kanski dáldið mömmu sinni eins og hún var sem barn) og svo fór ég bara í heimaskólaherbergið að vinna (undirbúa kennsluna í Voító) og sótti hann svo í  hádeginu þegar hann var búinn. Honum fannst alveg rosalega gaman og skemmtilegast af öllu að fá að velja bók með sér heim. Hann er algjör bókaomur.
Kristján fór til Voító strax á mánudeginum eftir að við komum frá Awasa. Hann var beðinn um að fara með bíl til ArbaMinch og koma til baka með annan og keyra í leiðinni gest frá Noregi, stúlku sem er í NLM menntaskóla sem styrkir heilsugæsluna hér í Gisma. Hann var því nokkra daga hér og kom svo aftur til baka á föstudeginum fárveikur. Þetta var nú bara einhver pest en ekki malaría eins og maður hefð kanski getað haldið. Ég var sjálf hálfslöpp alla vikuna og varð hálflasin á sunnudeginum eftir að hafa haldi afmælisveislu fyrir Dagbart Elí á laugardeginum. Hann átti afmæli í Awasa, 4. Febrúar og þar sem það var á miðri ráðstefnu var ekkert hægt að halda upp á það. Hann fékk því að hafa smá veislu í Addis og það átti að vera D- kaka með jarðaberjum! Hann er mjög upptekinn af því að núna er hann fjögurra ára og orðinn stór strákur.
Það fannst enginn nýr ísskápur en við tókum með okkur einn gamlan sem var sendur til Addis frá Ginnir. Við vorum nú ekkert allt of bjartsýn á að hann virkaði þegar við værum komin hingað en það mátti reyna. Hann virkar að því leiti að frystihólfið, sem er nú ekki stórt, virkar eins og ísskápur, ekki meira en það. Ísskápshlutinn er alveg ónýtur, enginn kuldi í honum. En nú höfum við allavega eitthvað kalt að drekka og við getum opnað lifrakæfudós og búið til túnfisksalat! Þetta er allt í lagi í bili en eitthvað verður að gera til að við fáum ísskáp. Málið er bara að kostar miljón íslenskar að flytja inn svona skáp!! En við sjáum hvað setur.
Við komum semsagt til Voító núna á þriðjudaginn í mesta hita sem við höfum upplifað hér til þessa. Hitinn hefur farið í 43°á hverjum degi og er oft 36- 37° inni þegar við förum að sofa! (Það þarf ekki að taka fram að við erum ekki með neina loftkælingu þar sem eina rafmagnið er lítill sólarpanell). Ef einhver er að velkjast í vafa þá er það skelfilega heitt svo vægt sé til orða tekið. Í dag kom reyndar smá vindur (sem ekki gerist oft hér í Gisma) og í kjölfarið rigning og smá kaldur vindur sem var bara himneskt!! Undan farna daga hefur vindgusturinn verið líkastur því að blásið sé á mann úr heitum hárblásara! Núna fór hitinn niður í 33° sem er reyndar ennþá heitt klukkan 9 að kvöldi en það munar um hverja gráðu þegar maður fer að sofa sérstaklega. Spurning hvernig verður að koma í kuldann á Fróni í sumar!! Ég hef reynt að hugsa ekki mikið um kalda svalandi sjávargoluna heima en verð að viðurkenna að í mesta hitanum sakna ég hennar þótt mér líði ekki sem verst í hitanum.
Nokkur gullkorn:
Krakkarnir eru orðnir mjög spenntir að fara til Íslands í sumar og í skólabílnum voru þau gjarnan að plana hvað þau ætla að gera í sumar. Allt í einu heyrist í Dagbjarti Elí:“ Ég verð að fá vettlinga mamma, amma og afi verða örugglega búin að prjóna og sauma handa mér vettlinga. Svo ætla ég að sitja með vettlingana og horfa á Lilla“ (Brúðubílinn)
Margrét Helga spurð í miðjum Íslandsplanleggingum: „Mamma er ennþá svona ástand á Íslandi. Við lendum þá í miðju ástandinu.“  Það fer ekki fram hjá þeim kreppan á Íslandi þar sem þau heyra okkur tala um þetta og var það ástandið sem hún víðsaði til.
Á rástefnunni í Awasa stendur iðulega ísskápur með köldum drykkjum í salnum. Jóel kom eitt kvöldið og sagðist vera þyrstur svo ég gaf honum ambó úr umræddum ísskáp. Eftir að hafa fengið fyrsta sopann horfði hann dreymandi augum á ísskápinn og sagði:“Mamma. Þetta er góður ísskápur, svona ættum við að hafa í Voító“
Eitt kvöldið fengu Margrét Helga og Jóel að vera með á kvöldsamveru. Á samveru þessari hafði framkvæmastjóri FLOM (finnska kristniboðið) hugleiðingu á ensku. Hann talaði með mjög sterkum finnskum hreim. Eftir smá stund hvíslaði Jóel að mér:Mamma hvaða tungumál er hann eiginlega að tala, talar hann finnsku eða hvað“ Þau eru orðin nokkuð góð í ensku bæði tvö og alveg með suður karólínskan framburðinn á hreinu (kennarar þeirra beggja koma frá South Carolina í Bandaríkunum) og voru dugleg að gagnrýna framburð mælenda á ráðstefnunni!
Læt þetta duga að sinni
Verið Guði falin.
10. des. 08
Jæja þá eru allir að skríða
saman. Fystu tvær vikurnar hér í Addis hafa bara farið í veikindi. Fyrst var ég
veik í heila viku, svo tók Dagbjartur Elí við, svo Davíð Ómar og svo Margrét Helga,
Jóel og Kristján. Margrét Helga og Jóel voru hvort um sig frá skólanum bara
einn dag með hita og hálsbólgu. Jóel fékk reyndar eitthvað í magann líka en það
gekk sem betur fer fljótt yfir. Þau eru enn mjög kvefuð en að öðru leiti hress.
Það var sama með Dagbjart Elí, hann fékk hita í einn dag en er orðinn sæmilega
hress þrátt fyrir slæmt kvef og hálsbólgu. Kristján er líka búinn að vera
eitthvað druslulegur en Davíð Óma varð veikastur af öllum, fékk háan hita í tvo
daga, virtist svo vera á batavegi en fékk þá aftur hita og varð alveg
ómögulegur. Tuula læknir kíkti á hann og hlustaði hann og fann út að hann væri
með sýkingu í lungunum. Hann er því búinn að vera á sýklalyfjum. Hann hefur því
lítið borðað en er núna að hressast og er farinn að verða aðeins duglegri að
borða. Þetta er svona frekar „slitsomt" eins og Norðmennirnir segja. Sérstaklega
líka þegar maður kemur dauðþreyttur frá Voító.Við erum farin að hlakka til að
fara í jólafrí til Awasa. Vonandi verða allir hressir þangað til.
Ég byrjaði loksins á
smákökubakstri í gær og tókst að klára þrjár sortir. Við Dagbjartur Elí bökuðum
fyrst tvær og svo var ráðist í piparkökubakstur þegar krakkarnir komu heim úr
skólanum. Kristján þurfti að stússast í bænum og ganga frá innkaupum af
vatnspumpunni fyrir Gisma svo ég var ein með krakkana en það gekk nú bara vel.
Davíð Ómar var ánægður ef hann fékk að hafa kökukeflið og smá deigklessu og hin
þrjú voru alveg svakalega dugleg. Meira að segja Dagbjartur Elí bjó til alveg
helling af kökum. Svo gerðum við líka lítið piparkökuhús sem fær nú ekki að
standa mjög lengi, þar sem við förum til Awasa, en krökkunum finnst það alveg
ómissandi.
13. des. 08
Enn er veikindasögunni ekki
lokið. Margrét Helga var heima í gær þar sem hún var komin með svo agalega
hálsbólgu greyið, hún gat varla talað og vaknaði um miðja nótt vegna sársauka.
Hún er líka komin á sýklalyf og er strax aðeins betri í dag.
Í gærkvöld fórum við að horfa á
jólaleiksýningu sem Jóel tók þátt í í skólanum. Það voru KG1 og 2
(Kindergarten) og fyrsti bekkur. Jóel stóð sig eins og hetja og kunni allt sem
hann átti að segja sem og alla texta við lög sem voru sungin. Þema leikritsins,
eða söngleiksins öllu heldur var frásagan af fæðingu Jesú en sett upp með
dáldið nýju sniði, mjög skemmtilegt fannst mér. Þetta var alveg hálftíma sýning
og alveg hrikalega krúttleg! Við fórum öll fjölskyldan nema Margrét Helga sem
var lasin fékk að vera hjá Toril á meðan og það fannst henni ekki slæmt.Hún var
búin að sjá leikritið með bekknum sínum daginn áður svo það kom ekki að sök.
Ég hef verið minnt á það alla
vikuna að 11. des. komi jólasveinarnir! Jóel er mjög spenntur fyrir þessu og
passaði upp á að það væru skór fyrir alla úti í glugga. Ég held að hann og
Margrét Helga viti nú nokkurnveginn hverjir þessir jólasveinar eru svona í
alvörunni en þeim finnst þetta bara svo gaman! Dagbjarti Elí leist hins vegar
ekkert á að það kæmi einhver jólasveinn inn í herbergi til hans en Jóel setti
skó fyrir hann í gluggann og passar að hann fái líka eitthvað í skóinn.
Dagbjartur Elí fær að byrja í
leikskólanum (KG1) á mánudaginn og er alveg alsæll með það. Hann hefur verið
hálfeinmanna hér greyið og ekki haft neinn að leika við. Litli bróðir er ágætur
stundum en ekki alveg nóg kanski þegar maður er alveg að verða 4 ára. Sigga
verður bara með honum og hann er svo spenntur og ánægður að fá að byrja.
Eiginlega átti hann ekki að byrja fyrr en í febrúar en kennarinn sagði að þetta
væri ekkert mál. Það er líka bara ein vika eftir núna.
Davíð Ómar er orðinn mun hressari
og farinn að borða betur og er það mikill léttir. Það er alveg ótrúlegt hvað
þessi veikindi hans leggjast þungt á mann. Líka að hann borðar ekki og hefur
svo litla mótstöðu. En í gær og í fyrradag borðaði hann mjög vel svo vonandi
heldur hann því áfram. Ég finn bara að mér sjálfri líður betur svona andlega,
þegar hann er frískur.
Ég er svona að komast á skrið í
jólaundirbúningi, aðeins búin að baka og svona en öll jólabréf of kort og
svoleiðis eftir, það verður því eitthvað síðbúið í ár! Við erum búin að vera
eitthvað voða þreytt og slöpp eftir að við komum og ekki hjálpa öll þessi
veikindi. Við Kristján fórum áðan og keyptum jólagjafir handa krökkunum.
Loksins komin ný sending af leikföngum í Novis. Það er ítölsk verslun og sú
eina þar sem hægt er að kaupa leiköng sem endast lengur en í viku! Þeir flytja
inn alvöru Barbie og lego og svoleiðis. En við erum líka farin að hlakka til að
fara til Awasa. Þar er vonandi aðeins hlýrra en hér í Addis og alltaf notalegt
að slappa af við sundlaugina og bara hvíla sig, lesa og gera það sem maður
gerir í fríi. Svo verður borðaður hamborgarhryggur og hangikjöt frá Íslandi og
ís og Nóakonfekt. Mamma og pabbi sjá til þess að við fáum íslenskan jólamat!
Ekki slæmt það.
15. des
Dagbjartur ELí byrjaði í leikskólanum ,KG1 í dag og ekkert smá stoltur. Þetta var pínu ógnvekjandi fyrst og mamma og Sigga urðu báðar að koma með. En ég lét mig hverfa fljótlega og kíkti svo bara við og við á hann. Hann fékk bók með sér heim og smá heimavinnu, minnisvers á ensku að sjálfsögðu og mjög spenntur að reyna að læra það! Á morgun reyni ég að senda hann einan með Siggu. Hann hefur alveg ótrulega gott af þessu.
Margrét Helga er orðin mun hressari og fór í skólann í dag. Davíð Ómar er líka eldsprækur og verður vonandi áfram!
Guð gefi ykkur öllum áfram góða
aðventu!
2.des 2008
Jæja loksins kemur þetta.
Þegar ég var loksins að verða frísk varð Dagbjartur Elí veikur og svo Margrét
Helga og Davíð Ómar. Kristján er líka búinn að vera druslulegur og Jóel er
kominn með í magann og fer ekki í skólann á morgun a.m.k. Margrét Helga fór
ekki skólann í gær en fór í morgun. Davíð Ómar er búinn að vera með háan hita
en er eitthað skárri í dag, hitalaus a.m.k. en alveg hræðilega kvefaður. Sama
má segja um Dagjbart Elí. En svona er þetta að koma úr næstum 40° í 15°.
Líkaminn þolir þetta frekar illa. Ég er því ekki búin að gera neitt af því sem
ég ætlaði mér eftir að við komum, ekkert farið að baka fyrir jólin eða neitt en
það er víst lítið hægt að gera við þessum lasleika annað en vera þolinmóður.
Það er samt stefnt á piparkökubakstur um helgina. En hérna kemur smá skýrsla:
26. nóv.2008
Jæja loksins!
Ég byrjaði á því að
leggjast í pest þegar við komum til Addis þannig að það er fyrst núna sem ég
setst niður. Þetta verður eflaust einhver langloka, þ.e.a.s. ef ég man eitthvað
eftir því sem gerst hefur að undanförnu en svona er nú það. Við sjáum til. Ég
er sem sagt búin að liggja með hita og kvef og kinnholubólgur og komin á
sýklalyf sem virðast nú vera að hafa áhrif. Ég er allvega komin á lappir. Ég
var orðin frekar þreytt núna á lokasprettinum suðurfrá og þá er alveg dæmigert
að maður verði lasinn. Ég var líka veik vikuna áður en við komum hingað, með í
maganum og fékk þá líka hita. Allir aðrir eru frískir eins og er. Davíð Ómar
fékk reyndar möbur um daginn eina ferðina enn og þurfti enn og aftur að fá lyf
við því, var kominn með bauga undir augun og blóðugar hægðir. Hann virðist nú
hafa náð sér af því en er ekkert allt of duglegur að borða, ekki frekar en fyrr
daginn. Kristján hefur líka þurft að vera á sýklalyfjum vegna sýkinga í sárum á
fótunum og Jóel sömuleiðis. Jóel var kominn með hita og orðinn slappur og það
gróf í sex sárum á fótunum á honum svo þá var ekki spurning að setja hann á
sýklalyf. Strax daginn eftir var hann miklu betri. Þetta er víst ekki óalgengt
í hitanum, að sár séu lengur að gróa og meiri hætta á sýkingum. En þetta er
allt á uppleið.
Starfið í Voító gengur
vel en það er ekki bara auðvelt að búa þarna. Ég ætti kanski frekar að orða það
sem svo að það eru margar áskoranir sem við þurfum að takast á við, því okkur
líður mjög vel þar. En það var gott að koma til Addis núna og alveg tímabært.
En eins og ég sagði líður
okkur vel. Við höfum kynnst mikið af góðu fólki og ánægjulegt að sjá hvað það
er góður kjarni af kristnu fólki sem leiðir safnaðarstarfið. Þetta er ekki stór
söfnuður ef aðeins fullorðna fólkið er talið, líklega um tuttugu fjölskyldur en
þessum fjölskyldum tilheyra um 150 börn svo það er mikilvægt að haldið sé utan
um þau því þau eru framtíðin. Í Voító er viðhorf til barna dálítið öðruvísi en
við þekkjum í hinum vestræna heimi, jafnvel meðal hinna kristnu þó svo það
breytist mikið þegar fólkið tekur trú á Jesú og upplifir kærleika hans. Mér
finnst samt of mikið talað um hvað börnin eru til mikilla vandræða í kirkjunni
o.s.frv. og hef reynt að tala um hvað það sé mikilvægt að þau fái líka
uppfræðslu á sunnudögum þegar það er guðsþjónusta. Því miður hefur ekki verið neinn
sunnudagaskóli að undanförnu en mig langar að reyna að hjálpa til við að koma
því í gang. Það er mikið betra ef heimafólkið sér um það sjálft því auðvitað er
best fyrir börnin að fá fræðslu á móðurmálinu sínu. Mig langar hins vegar að
vera til stuðnings og reyna að miðla af reynslu minni og þekkingu. Ég hef séð
um samverur fyrir börnin á þriðjudagseftirmiðdögum þar sem við sitjum undir tré
við kirkjuna, syngjum og heyrum frásögn úr Biblíunni og svo hef ég leyft þeim
að hlusta á mismunandi tónlist. Þetta er alveg nýtt fyrir þeim og þau sitja
alveg dáleidd og hlusta á Bach, Händel, Chopin og Grieg! Mig vantar samt
einhvern með mér sem getur túlkað yfir á tsamakko sem er tungumálið þeirra. Þau
elstu skilja amharísku og ég hef reynt að fá þau til að hjálpa mér en þau eru
feimin við það. Börnin í í Gisma eru mér mjög hugleikin og þið megið gjarnan
muna eftir þeim í bænum ykkar.
Kristján hefur verið
duglegur að sinna drengjunum. Hvern eftirmiðdag hefur hann fótboltaæfingar sem
hann byrjar með stuttri frásögn úr Biblíunni og bæn. Margir drengjanna koma frá
fjölskyldum sem ekki eru kristnar. Um daginn voru svo haldnir ólympíuleikar í
Gisma. Byrjað var á stund sem Lemma, evangelistinn okkar sá um og svo var keppt
í stökki hlaupi og fleiru. Þetta kunnu þeir vela að meta og margir fullorðnir
sem og yngri börn komu til að horfa á. Jóel var að sjálfsöðu með líka!
Kristján hefur í mörgu að
snúast. Oftar en ekki er hann beðinn að keyra í fyrir sjúkraskýlið í
fæðingarhjálp, bólusetningar, sjúkraflutningar og fleira. Bíllinn sem tilheyrir
sjúkraskýlinu bilaði fljótlega eftir að við komum í sumar og hefur ekki komið
aftur. Hann þarf líka að fara hitt og þetta um Voitodalinn í ýmsum
erindagjörðum. Mekane Yesus kirkjan hefur ábyrgð á 10 skólum víðsvegar í dalnum
og það þarf að fylgjast með þeim, keyra kennara fram og til baka o.s.frv. Það
hefur ekki gengið of vel að manna þessa staði og margir kennararnir eiga í
erfiðleikum. Þetta mikilvæga skólastarf þarfnast fyrirbænar. Í síðasta mánuði
tók Kristján svo þátt í námskeiði á vegum suðvestur sínódunnar fyrir
evangelistana á svæðinu. Þar fékk hann það verkefni að kenna bókhald á
amharísku í fimm klukkutíma! Það var mikil vinna og undirbúningur en gekk vel
með Guðs hjálp. Hann predikar líka í kirkjunni reglulega og gengur vel að mér finnst.
Margrét Helga virðist
sæmilega sátt í Voító þótt hún kvarti stundum yfir að hafa ekki nógu marga
leikfélaga. Stelpurnar í þorpinu koma örsjaldan til að leika því þær hafa svo
miklum skildum að gegna heimafyrir. Hún hefur aðeins leikið við tvær stelpur
sem eru aðfluttar en ekki samt einhvernvegin náð að eignast góðar vinkonur. Hún
er samt dugleg að dunda sér og elskar að teikna og lesa. Hún les núna sér til
ánægju hvort sem er á íslensku, ensku eða norsku. Svo er ég farin að kenna
henni á píanó og það gengur bara mjög vel og henni finnst það mjög gaman. Hún
er líka mikið að semja ljóð og lög sjálf og fékk um daginn stílabók hjá mér til
að skrifa textana sína í. Hún er dugleg í skólanum og biður oft um auka
heimaverkefni. Annars höfum við alveg sleppt heimavinnu því það er nóg að hafa
mömmu yfir sér í skólanum hálfan morguninn og svo komumst við líka yfir svo
ótrúlega mikið í skólanum þar sem þau eru bara tvö. Hún var glöð að koma til
Addis núna og hitta vinkonur sínar. Hún er orðin alveg ótrúlega flink í ensku
og skil næstum ekki hvernig hún hefur lært þetta svona fljótt og vel. Við höfum
alltaf einn ensku tíma á hverjum degi í Voító en samt. Líklega hefur það mikið
að segja hvað hún er dugleg að lesa.
Jóel er alsæll. Hann á
heilan hóp af vinum og er úti að leika allan daginn. Hann er duglegur í
skólanum líka, orðinn nokkuð vel læs og
við erum byrjuð að undirbúa lestur á ensku líka. Honum finnst samt mest
gaman í amharísku í skólanum. Það er stúlka frá Jinka sem vinnur á
sjúkraskýlinu sem kennir þeim amharísku tvisvar í viku. Hann á ekki alltaf
jafnauðvelt með að einbeita sér en vitlaus er hann ekki drengurinn! Það er bara
svo margt að gerast í kollinum á manni stundum þegar maður er sex ára strákur,
og skemmtilegra að vera úti í þorpi með hinum strákunum. Nú eru þeir reyndar
líka í skólanum fyrir hádegi þannig að það hjálpar. Strax eftir hádegismat fer
hann út og kemur kanski rétt aðeins í eftirmiðdaginn til að fá sér að drekka og
fer svo í fótbolta. Svo kemur hann skítugur upp fyrir haus heim þegar fer að
myrkva. Dobo nágrannakonu okkar (konan hans Dillo) finnst þetta alveg frábært
hvað hann er bara eins og einn af strákunum, og klæddur eins og þeir þ.e. á
nærbuxum einum fata. Þetta er auðvitað vitnisburður líka. Flestir strákana eru
eldri en hann en það skiptir engu og það er leikið svo innilega að unun er að
fylgjast með,þvílíkar vega- og byggingaframkvæmdir og náttúran leikvöllurinn!
Þeir tala amharísku við Jóel en tsamakko sín á milli svo hann er farinn að
skilja heilmikið. Svo eru strákarnir búnir að læra smá íslensku. Oftar en ekki
heyrum við hrópað úr þorpinu: "Jóel, kondu!" Þegar við keyrðum suðureftir
síðast var fyrst um sinn hrópað "Ferenge, ferenge" eftir því sem sunnar dró
fara þau að hrópa "Highland, highland" sem er nafnið á vatni sem selt er hér í
landi og túristar gefa krökkum oft flöskur á leiðinni. Þegar við komum svo til
Gisma var hrópað "Jóel, Jóel"! Hér í Addis er það svo Lise sem er besta vinkona
hans. Hún býr í Filtu svo þau hittast bara þegarallir eru saman í Addis. Þau
eru eins og lítil hjón, hrikalega ktúttleg. Um daginn þegar hann ætlaði með
Kristjáni að versla varð hann fyrst að láta Lise vita því hún vill gjarnan vita
hvar hann er!
Dagbjartur Elí hefur átt
hvað erfiðast með að venjast breytingunum. Þetta gengur upp á við en það koma
oft erfiðir dagar inn á milli. Hann saknar Asnakú og Fantanesh hræðilega mikið
og talar mikið um Mekanissa. Einn daginn heyrði ég hann segja við sjálfan sig
að hann ætlaði að kveikja í húsinu í Voító því þá þyrftum við að flytja til
baka til Mekanissa og þá yrði gaman, húrra! Elsku litli karlinn! En svo koma
dagar þar sem hann leikur við strákana úti með Jóel og allt virðist í
himnalagi.  En hann er auðvitað að ganga
í gegnum sorgarferli. Hann var mjög glaður að koma núna til Addis. Asnakú gat
reyndar ekki verið að vinna hjá hjá okkur því hún er búi að fá aðra vinnu og
það erum við auðvitað þakklát fyrir. En hún kom í heimsókn einn morguninn og
við fórum til hennar á laugardaginn og svo ætlar hún að reyna að koma næsta
laugardag og vera með honum. Hann fær að vera með í skólanum í Voító eins og
hann vill og er farinn að þekkja nokkra stafi og tölusafi og duglegur að telja.
Hann kemur oft með fulla tösku af bókum og situr og les á meðan ég er að kenna
krökkunum. Hann er algjör bókaormur. Hann segir yfirleytt ekki mikið eða syngur
með þegar við erum að syngja en svo allt í einu heima fer hann að syngja söngva
eða fara með þulur sem við höfum verið að læra í skólanum og ég hafði ekki
hugmynd um að hann hefði lært.Ég ætla að athuga hvort hannfær ekki aðeins að
koma í heimsókn í leikskólann á Bingham, bara til að sjá hvernig þetta er og
svo fær hann að byrja í febrúar þegar hann er orðinn fjögurra ára.
Davíð Ómar hefur verið
frískur að mestu og það erum við þakklát fyrir. Hann fékk reyndar amöbur enn
eina ferðina um daginn en fékk strax lyf. Hann vill líka vera í skóla eins og
stóru systkinin en það er ekki allveg jafnauðvelt að fá hann til að sitja kyr
eins og hin. Sigga fer því yfirleitt með hann í göngutúr í kerrunni á meðan ég
er að kenna fyrstu tímana og það finnst honum líka mjög gaman. Svo kemur hann
hlaupandi á bleyjunni í skólann og segir "Gódæ!"  og krakkarnir segja að nú sé skólastjórinn
kominn. Hann er ósköp lítill eftir aldri en duglegur er hann, mjög fimur og
prílar upp um allt og allsstaðar. Hann talar líka orðið heilmikið, mest
íslensku, svo amharísku og líka smá tsamakko. Hann gerir sér líka grein fyrir
þegar fólk er að tala norsku því þá svarar hann með mjög norsku "ja" og kveður
á norsku þegar fólkið fer! Hann hefur orið orð á öllu á íslensku og er líka
farinn að búa til setningar. Hann kallar á systkini sín með nöfnum, Margrét
Helga er "Gaggaleia" Jóel er "Lóvel" og Dagbjartur Elí er "Billí" sjálfur
heitir hann "Dawit" sem er amharíska útgáfan af Davíð. Um daginn vorum við
askoða bók sem er um afríska stelpu. Á fyrstu blaðsíðunni var stór mynd af
stelpunni. Hann benti á hana og sagði "Habtama" Habtama er lítil stelpa sem býr
á kristniboðslóðinni hjá frænku sinni. Svo skoðuðum við lengra í bókinni og þar
var aðeins minni mynd af sömu stelpunni. Og ég spurði: "hver er þetta?" Dawít"
svaraði hann á. Ætli hann haldi ekki sjálfur að hann sé Eþíópi! Hann er allvega
nokkuð sáttur í Voító og á nokkra leikfélaga sem eru á hans aldri. Hann leikur
oft við dóttur þvottakonunnar og svo í koma nokkur svona kríli í kirkjuna á
sunnudögum. Þau eru svo krúttleg saman og virðast vera í mjög alvarlegum
samræðum og skipulögðum leik með litla steinsvölur sem þau finna.
Skólinn gengur vel og það
hefur gengið vel með Siggu líka. Ég kenni íslensku, ensku, stærðfræði og tónmennt
og hún kennir kristinfræði, samfélagsfræði, norsku og myndmennt. Ég tek þrjá
fyrstu tímana á morgnana og Sigga tvo seinni. Fantae sem vinnur á
heilsugæslunni kennir þeim svo amharísku tvo tíma í viku. Ég undirbý og
skipulegg alla kensluna og reyni að fylja bæði íslensku námskránni og þeirri
sem notuð er á Bingham. Þetta er heilmikil vinna, en mér finnst þetta gaman og
mér finnst hafa gengið vonum framar að kenna krökkunum sjálf. Það er ekki bara
sjálfsagt að það gangi vel að hafa mömmu sem kennara. Það eru mörg hlutverk sem
ég þarf að sinna gagnvart börnunum, vera mamma, kennari, píanókennari osvfr.
Það er ekki alltaf auðvelt en með Guðs hjálp gengur þetta.
Eitt af því er er stundum lýjandi er að við
höfum lítið einkalíf. Fólkið fylgist grant með öllu sem við gerum og allar
sögur breyðast út sem örskot. Bara svona sem dæmi þá voru konurna alltaf að
segja mér að gefa Davíð Ómari brjóst. Það byrjaði með konunum í kirkjunni en
þær hættu smám saman að tala um þetta þegar ég kom þeim í skilning um að þar
væri bara ekkert fyrir hann að fá, alveg tómt. Svo í hvert skipti sem ég mætti
konum úr þorpinu var þetta aðal málið, þær benda á brjóstin á sér og brjóstin á
mér og barnið (sem er ekkert að kvarta by the way!) og benda mér að leggja hann
á brjóst. Svo einn daginn hitti ég konu úr þorpinu sem talar amharísku og hún
sagði mér að þær héldu að ég ég væri ófrísk fyrst ég væri ekki lengur með Davíð
Ómar á brjósti. Það hefur ss. Mikið verið spáð í þessa hvítu konu sem ekki
gefur eins og hálfsársgömlu barni sínu brjóst, hún hlýtur þá að eiga von á
öðru! Eins ef Kristján hefur farið einhverja ferð af mismunandi ástæðum, sem
kanski bara tveir vita um, fyrir utan mig þegar hann fer, þá veit allt þorpið
það daginn eftir og karlarnir koma til að forvitnast um hvað hann hafi verið að
gera! Það er auðvitað hægt að brosa að þessu en þetta getur líka verið lýjandi.
Við höfum reynt að setja reglur
um umgang á lóðinni en þð gengur. Það eru ekki bara við sem verðum þreytt á
þessum umgangi heldur líka eþíópska samstarfsfólkið okkar sem býr á lóðinni. Um
daginn var verið að deila út korni vegna þurkanna og þá var enginn friður við
húsið. Stundum verðum við bara að loka og vera inni til að fá smá frið. En sem
betur fer er þetta sjaldan svo slæmt. Það er erfitt að finna milliveginn, við
viljum reyna að sýna fólkinu kærleika og taka vel á móti fólki sem kemur en það
eru auðvitað líka takmörk fyrir hversu mikinn ágang maður getur þolað stundum.
Við biðjum Guð að vera með okkur í þessu líka og sýna okkur hvernig við eigum
að mæta fólkinu.
Okkur líður vel í Voító og sjáum
svo sannarlega tilgang með veru okkar þar. Við lítum á hlutverk okkar fyrst og
fremst að vera til staðar og styðja við starfið í kirkjunni eins og við getum.
Báðir regntímarnir í ár brugðust
svo nú er útlit fyrir uppskerubrest á ný. Kristján fékk reyndar jákvætt ssvar
við styrk til að kaupa vatnsdælu sem getur dælt vatni úr ánni og vökvað akrana.
Í næsta nágrenni við Gisma er þessi aðverð notuð á stórum bómullarökrum sem er
grænir þrátt fyrir regnleysi. Reyndar hefur rignt annarsstaðar í Voítódalnum en
regnið hefur alltaf einhvernvegin farið fram hjá Gisma. Það er því bæn okkar að
þessi vatnsdæla verði til hjálpar og karlarnir finni hjá til ábyrgðar að láta
hana ganga. Hingað til hafa þeir ekki reynt að gera svo mikið því þeir vita að
það kemur neyðaraðstoð frá ameríku með korn. Auð vitað er það gott inn á milli
en þegar fólkið er algjörlega farið að stóla á það og reynir ekkert til að
halda ástandinu stöðugu er þeta ekki gott. Kristján sýndi nokkrum körlum á
korti hvaða leið þetta korn hefði farið og hversu mikil vinna og keyrsla, og
skipsferðir voru á bak við það. Þetta þótti þeim mjög merkilegt og höfðu
auðvitað aldrei spáð í það!
Það er bæn okkar á hverjum degi að Guð leiði
okkur í starfinu í Voító og sýni okkur á hvern hátt við getum hjálpað og verið
fyrirmyndir. Þótt ekki séu margir kristnir ennþá er ekki spurning að Drottinn
hefur breytt miklu í lífi þessa fólks sem tekið hefur á móti kærleika hans og
ég trúi því að þetta sé bara byrjunin. Nú fá fleiri börn að lifa í Voító því
kristna fólki hefur tekið að sér börnin sem annars áttu ekki að fá að lifa
samkvæmt trú tsemaifólksins. Ef barn fær tönn fyrst í efrigóm er það merki um
bölvun forfeðra andanna og barnið verður að deyja, sömuleiðis ef kona með barn
á brjósti verður ófrísk verða bæði börnin að deyja því á þeim hvílir bölvun.
Kynlíf utan hjónabands virðist lítið tiltökumál en ef stúlka verður ófrísk utan
hjónabands má barnið ekki lifa. Lemma evangelistinn okkar hefur tekið að sér
tvö slík börn sem nú eru orðin fullorðin og hafa hlotið menntun. Áður samþykkti
fólkið aðeins að farið væri með börnin úr dalnum en núna er í lag að þau fái að
vera í Voító ef kristið fólk tekur þau að sér. Mér hefur fundist mjög sérstakt
að sjá þessi börn og mjög sterkur vitnisburður. Þetta fólk á lítið og á kanski
mörg börn sjálft en vegna kærleika Jesú hafa þau tekið þessi dauðadæmdu börn að
sér. Læbó er kristinn tsemaimaður sem rekur litla verslun og myllu í Gisma.
Hann hefur tekið að sér dreng sem á aldur við Davíð Ómar og átti sá drengur ekki
að fá að lifa. Hann gaf drengnum nafnið Setota sem merkir gjöf. Hann leit á
þennan litla dreng sem ekk átti að fá að stækka og dafna sem gjöf Guðs til sín.
Þetta segir meira en mörg o
Já hér er nýjársdagur í dag, árið 2001 gengið í garð! og hér kemur svo önnur langloka fyrir áhugasama.
28.ágúst - 10. sept.
28.ágúst
Davíð Ómar er loks orðinn frískur. Hann kastaði upp í fimm daga og fékk svo einn dag með niðurgang. Hann er samt enn ekki kominn með neitt sérlega góða matarlyst sem er ekki alveg nógu gott því hann má varla við þessu. Ég þarf að fara með hann á sænsku klíkina í næstu viku því Arne læknir vildi fá að fylgjast með honum, sjá hvort hann sé ekki að stækka eitthvað og þyngjast eðlilega.
Krakkarnir byrjuðu í skólanum á þriðjudaginn og eru alsæl. Það eru langir skóladagar og í næstu viku bætist svo við heimavinna þannig að þetta er heilmikið. Sigga var með Jóel  þar til í dag. Hún ætlaði reyndar með honum en fékk eitthvað heiftarlegt í magann. Vonandi að hún nái sér fljótt. Jóel gekk bara vel að vera einn. Juho sem er finskur er í hans bekk og Saara sem er finski kennarinn hans fylgir honum. Hún talar góða sænsku svo hún gat aðeins aðstoðað Jóel þar sem hann skilur sænskuna vel líka.Hann skilur auðvitað ekki enn öll fyrirmæli en reynir að herma eftir hinum. Hann reynir líka stundum að fá Siggu til að gera hlutina fyrir sig en nú verður hann að sjá um þetta sjálfur, skóladrengurinn. Hann getur stundum dottið í sinn eigin hugarheim en er annars frekar duglegur að læra og fljótur að ná hlutunum. Hann er orðinn nokkuð góður í að lesa á íslensku og er líka að átta sig á enskunni.
Margrét Helga sat til að byrja með með norsku stelpunum en svo fundum við út að það truflaði hana að heyra þeirra túlk tala norsku svo ég bað kennarann hennar að færa hana. Nú situr hún bara með bandarísk/ eþíópsku stelpunum og það gengur mun betur. Hún einbeitir sér bara að enskunni í skólanum og svo talar hún norsku þegar hún kemur hingað og leikur með norsku krökkunum.
Ég er búin að vera sl. Þrjá daga á ráðstefnu fyrir heimaskólaforeldra. Það var mjög fínt og gagnlegt að heyra frá reynslu þeirra sem hafa verið lengi með heimaskóla. Í Bandaríkjunum og eins Ástralíu og Nýja- sjálandi er ekki óalgengt að fólk kenni börnum sínum heima. Í Bandaríkjunum er til ógrynni af námskrám og námsefni sem hægt er að velja um. Flestar mæðranna þarna blanda saman námskrám eftir því hvað hentar þeirra börnum best í hvaða fagi og flestar eru að nota námskrár og námsefni sem samið er af kristniboðum fyrir kristniboða. Ég er eignlega að setja saman mína eigin námsskrá þar sem ég tek mið bæði af íslensku aðalnámskránni og cambridge námskránni sem notuð er á Bingham. Cambridge er alþjóðleg námskrá sem er með mjög háan standard en er góð vegna þess að flestir krakkarnir sem útskrifast úr þessu kerfi komast án vandræða inn í hvaða háskóla sem er bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Þau eru langt á undan í stærðfræði og móðurmáli. Til að Margrét Helga og Jóel geti verið á sama stað í íslensku td. og hin eru í ensku, verð ég að nota alveg upp í 7. bekkjar námsefni og bara sníða það að þeirra þroska og skilningi. Sama má segja um stærðfræðina. Þetta er heilmikið púsluspil og mikil vinna þótt þetta séu bara tveir nemendur í 1. Og 2. bekk! En mér finnst þetta mjög gaman og spennandi og ótrúlega gaman að sjá hvernig þau læra tungumálin. Margrét Helga er orðin ótrúlega sleip í að lesa á ensku og getur jafnvel lesið rétt orð sem hún ekki skilur því hún er búin að átta sig á framburðinum. Hún situr og les fyrir Jóel sem er mjög gott því þá lærir hann líka. Ég hef fengið fullt af góðum lestrar bókum á Bingham bæði frá bókasafninu og heimaskólaherberginu.
Ég er allavega mjög ánægð með þennan skóla. Það er líka bara svo gott andrúmsloft þarna og kennararnir eru þarna allir af köllun og leggja hjartað í starfið. Það eru öll minstu smáatriði löggð í Guðs hendur og kennararnir sinna svo sannarlega kristniboðsstarfi meðal barnanna, á svo eðlilegan hátt. Trúin er einhvernvegin svo eðlilegur hluti af daglega lífinu í skólanum.
Asnakú er ekki enn búin að fá vinnu svo ég bauð henni að vinna hjá okkur núna meðan við erum hér. Dagbjartur Elí er svo glaður og kátur að fá Asnakú og Davíð Ómar líka. Við fórum í mat til Fantanesh á sunnudaginn eftir úrslitaleikinn í handbolta sem við horfðum á á Hilton hótelinu. Hún kom okkur sko aldeilis á óvart. Þegar við komum inn í stofuna blasti fyrst við okkur þetta fína sófasett og svo heilsaði okkur afskaplega hægverskur maður sem sat í horni stofunnar. Það var svo sem ekkert óvenjulegt því það er oft eitthvað fólk í heimsókn hjá henni. Fantanesh sem er alltaf eitthvað að fíflast sagði fyrst að þetta væri pabbi hennar en ég vissi nú að það var ekki rétt. Svo kom í ljós að þetta er heitmaður hennar! Ég hélt lengi vel að hún væri bara að grínast því hún er alltaf eitthvað að fíflast með þetta með mann og segist vilja giftast gömlum ríkum karli sem er við dauðans dyr svo hún fái góðan arf! En þetta var ss. hann Berhanu sem hún er trúlofuð og það er fyrir víst þar sem hún sagði okkur þetta því svona er allt mikið leyndarmál þar til fólk hefur ákveðið að gifta sig. Þau eru ekki enn formlega gift en það er víst bráðum en Fantanesh var eitthvað smeyk við þetta allt því allir ætlast til að það verði haldið almennilegt eþíópskt brúðkaup en það er nú aldeilis ekki ókeypis. Ég held líka að þau langi til þess þannig að ef einhvern langar að gefa henni smá brúðargjöf má leggja inn á reikninginn okkar. En okkur leist allvega vel á manninn og erum mjög glöð hennar vegna. Hún er enn ekki komin með vinnu en við lítum á þetta sem bænasvar þar sem hann Berhanu er með vinnu svo nú er hún ekki alveg ein á báti.
Kristján er núna kominn til Woito. Mér fannst eitthvað voðalega erfitt að hann væri að fara. Þetta er eitthvað svo langt í burtu. En við verðum nú í símasambandi og svo reynir hann að koma til baka eftir kanski 10 daga. Jóel er alltaf voðalega ómögulegur þegar pabbi fer og það má helst ekki tala um það því þá bara fer hann að gráta. En svona er þetta, Kristján getur ekki verið svona lengi í burtu frá starfinu í hvert skipi sem við komum í skólann. Í næstu umferð verðum við svo níu vikur í Woito og erum svo eiginlega búin að ákveða að vera aftur í þrjár vikur hér í Addis þar sem það er eiginlega nauðsylegt fyrir krakkana til að komast betur inn í tungumálið og allt saman á Bingham.
Gullkorn:
Sigga var að túlka fyrir Jóel sögu sem kennarinn var að les um lítinn ljónsunga sem var dálítið einmana því hann kunni ekki allt eins og hin dýrabörnin, hann kunni td ekki að lesa og skrifa eins og þau og fannst hann svo mikið öðru vísi. Svo spurði hún krakkana og Sigga túlkaði fyrir Jóel, hvort þeim hefði einhverntíman liðið þannig, Nei það hafði Jóel aldrei upplifað. Svo spurði hún ef þeim liði þannig hver er það þá sem er alltaf hjá þér. Þá svaraði Stubbur:" Margrét Helga!" "En á nóttunni ef þú verður kanski eitthvað leiður eða hræddur" "Margrét Helga er alltaf hjá mér" Svo spurði hún hvort honum findist leiðinlegt ef aðrir í kringum hann kynnu eitthvað sem hann kynni ekki td. Þegar Margrét Helga kunni að lesa en ekki hann:" Nei því þá getur hún kennt mér"! Svo héldu þau áfram að tala um þetta hver væri alltaf hjá manni, líka þegar Margrét Helga væri ekki og Sigga benti með fingrinum upp í loft þá kom loksin: "Já, Jesús!" Hún er ekkert smá STÓR þessi stóra systir og þau eru líka bestu vinir. Hann er líka alltaf svo jákvæður.
Ég hafði beðið norsk vinahjón okkar að kaupa fyrir mig eina söngbók í Noregi sem var dýrari en ég hélt því norska krónan er svo sterk miðað við birrið og ég hafði ekki gert mér grein fyrir því., Jóel heyrði eitthvað að ég var að tala um þetta og sagði strax:"Mamma ég á fullt af peningum í Woito sem þú getur fengið!" hann er svo mikið krútt, þetta eru nokkur birr sem hann á og einhver sent, Þau eru að safna sér systkinin fyrir að komast í sumarbúðir (einhver áhrif úr myndinni Regínu!)
Sigga og Margrét Helga sátu í skólabílnum á leiðinni heim og þá segir Margrét Helga allt í einu: "Ég er sko búin að sjá alla kúluna!" Sigga skildi ekki alveg hvað hún átti við með kúluna."Bara alla kúluna, ég er búin að fara til Noregs og Svíþjóðar og Íslands og London og Eþíópíu" Ekkert smá veraldarvön skvísa!
En nú er komin háttatími. Minsti maðurinn er yfirleitt vaknaður ekki seinna en sex, það er svo mikið að gera hjá honum! Mætti halda að hann ætti eigi að vera mættur einhversstaðar á morgnana! Svo það er eins gott að koma sér í rúmið! Ég kúri með alla krakkana hjá mér, þ.e. í sama herbergi. Þau komast ekk öll fyrir uppí. Ég geri það alltaf þegar Kristján, er í burtu, mér líður einhvernvegin betur með það. Algjör hönemor eins og Norðmennirnir segja! En það er líka bara allt í lagi. Börnin mín eru það dýrmætasta sem ég á!
1. September
Jóelínus  sex ára á morgun! Hann er svo duglegur. Sigga er enn svo slöpp að hún hefur ekkert getað farið með honum í skólann og Asnakú getur ekki komið fyrr en kl. 9 á morgnana og ég hef í ýmsu öðru að snúast á meðan við erum hér í Addis svo hann hefur bara verið í einn í skólanum og plumar sig vel. Ég held hann skilji helling þótt hann skilji auðvitað ekki allt. Hann kemur dauðþreyttur en alsæll heim úr skólanum. Þau eru oft ekki komin heim fyrr en að verða hálffimm og í dag var klukkan orðin meira en hálffimm og svo er heimavinnan eftir þannig að þetta er hellings vinna. Margrét Helga fór ekkert í skólann í dag því hún kastaði upp í gær og var óttalega slöpp í dag. Ég ætla að hafa hana heima í morgun líka en ég vona nú að hún komist í skólann á miðvikudaginn. Verst að við ætluðum út að borða á morgun efir skólann í tilefni dagsins en ég samdi við Jóel um að ég sæki hann í skólann og svo förum við og kaupum eitthvað gott að borða og tökum með  heim. Hann fær líka að taka með sér smá gotterí og svona til að halda upp á daginn með bekknum sínum
Ég fór og lét vikta Davíð Ómar í morgun og mæla lengdina. Hann er ósköp smár litli trítillinn minn og var búinn að léttast um hálft kíló frá því hann var viktaður síðast um miðjan júní. Það er kanski ekki skrítið þar sem hann kastaði upp í fimm sólarhringa og fékk svo niðurgang og er enn ekki kominn með almennilega matarlist. Hann er ekki nema 10 kg og 75 cm. Ég hrindi í Arne Bredvei lækni á sænsku klínikinni sem sagði að þetta væri ekkert til að hafa áhyggjur af þar sem hann hefði eitthvað lengst og það er búið að taka blóðprufur sem ekkert sýndu óeðlilegt. Hann samsvarar sér alveg en er mjög lítill miðað við aldur og undir normalkúrvunni en hann þroskast alveg eðlilega. Við verðum bara að fylgjast með honum og vikta og lengdarmæla hann reglulega. Hann er svo mikill grallaraspói, alltaf hlæjandi og kemur manni í gott skap með smitandi hlátri sínum. Hann klifrar upp um allt og allsstaðar og elskar að vera úti að leika. Hann talar líka svo mikið bæði íslensku og amharísku og meira að segja smá norsku líka núna. Hann hermir eftir öllu sem hann heyrir og er fljótur að tileinka sér ný orð. Honum finnst rosa gaman að sitja hjá vörðunum hér við hliðið og horfa á bílana og spjallar við þá á amharískunni sinni.
Davíð Ómar vaknar af og til á nóttunni svangur því það er misauðvelt að koma oní hann mat á daginn, maður verður að reyna að gefa honum oft að borða því hann borðar lítið í einu. Í nótt vaknaði hann svangur svo ég gaf honum banana og mjólk og svo hélt ég að hann væri tilbúinn að fara að sofa. En þegar hann var alveg að sofna rumskaði Margrét Helga og hélt hún þyrfti að gubba. Það gekk nú yfir en allt í einu heyrðist ámátlega úr rimlarúminu:"bubba, bubba" svo ég hélt kanski að Davíð Ómar þyrfti líka að gubba. Ég lét hann fá dollu og hann beygði sig yfir hana og þóttist gubba. Svo vildi hann bara ekkert fara að sofa og hélt áfram að tala um að hann þyrfti að "bubba". Svo loksins þegar ég tók hann upp í til mín sofnaði hann með bros á vör!
Í morgun þegar ég fór með hann upp í heilsugæsluherbergið þóttist hann líka vera að gubba. Þar er dáldið af leikföngum og m.a. svona bollar til að byggja turn úr. Hann tók einn bollann og beygði sig yfir hann og sagði:"bubba" og þóttist vera að gubba! Aumingja barnið, eins og hálfs árs er hann svo oft búinn að kasta upp að þetta er orðinn hluti af leiknum líka!
Kristán er enn í Woito og við söknum hans voðalega. Við reynum að hringjast á á hverjum degi en það er ekki alltaf jafnauðvelt að ná sambandi. Sérstaklega Jóel er voða viðkvæmur og stutt í tárin ef minnst er á pabba. En hann ætlar að reyna að koma eins fljótt og hann getur til baka hingað. Við verðum hér uþb tvær vikur í viðbót. Hér rignir eldi og brennisteini en í Woito er allt skrjáf þurrt. Skrítið að hugsa til þess að þetta sé sama landið.
3.sept
Ég varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu í gær að vera rænd um hábjartan dag á sæmilega fjölfarinni götu. Ég var að koma úr búð og var með Dagbjart Elí með mér svo ég leiddi hann öðrum megin og hélt svo á veskinu og pokunum með því sem ég hafði verið að kaupa í hinni. Ég var alveg grunlaus og gekk niður götuna og var alveg að koma að norsku lóðinni. Þá gengu fyrir framan okkur tveir unglingsstrákar, löturhægt og af því að það var talsvert af bílum á götunni og engin gangstétt, bað ég þá um að fá að komast framhjá þeim. Allt í einu finn ég að annar þeirra tekur um hálsinn á mér og slítur af mér gullhálsmen sem ég var með um hálsinn. Þetta var hálsmen með nafninu mínu á fídelum sem ég keypti hér úti fyrir 13 árum og kostaði á sínum tíma 1000 birr (um 9000 ísl) en er núna líklega milli 2 og 3 þúsund birra virði. Ég öskraði eins hátt og ég gat "leba, leba" (þjófur, þjófur) því það hafði mér verið sagt að ég ætti að gera ef eitthvað svona kæmi fyrir því þá myndi fólk hjálpa manni. En það hjálpaði mér enginn. Nokkrir stoppuðu og störðu bara en enginn gerði neitt og ég gat auðvitað ekkert gert með barnið með mér. Það fyrsta sem ég hugsaði samt var að ég var glöð að ég var ekki með krossinn sem amma gaf mér í fermingargjöf sem hún sjálf fékk þegar hún fermdist því hann hefur meira tilfinningalegt gildi fyrir mig og ekki hægt að kaupa nýjan. Ég er yfirleitt annað hvort með hann eða þetta hálsmen. Ég hélt einhvernvegin að maður væri öruggur hér, en mér skilst að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist einmitt á þessum stað sem ég var. Það hafði ég aldrei heyrt. Úti á Mekanissa,þar sem við bjuggum í þrjú ár, hef ég aldrei heyrt um neitt svona og alltaf gengið um róleg en núna erum við auðvitað í miðbænum. Ég er hinsvegar alltaf mjög varkár á Piaza og Merkato og svoleiðis stöðum þar sem svonalagað er alltaf að gerast. Ég tilkynnti þetta á hverfislögreglustöðinni en efast einhvernvegin um að þeir nái þessu aftur en þó veit maður aldrei. Ég lýsti þjófunum fyrir þeim og þeir fóru strax nokkrir að leita en það verður bara að koma í ljós. Ég kem a.m.k. aldrei framar til með að fara svona með krakkana og helst ekki ein og þá allavega alls ekki með nein stór verðmæti á mér. Ato Hailo sem vinnur hér á skrifstofunni sagði að þeir væru marg búnir að kvarta undan lélegri löggæslu og Solomon yfir vörðurinn á lóðinni hér sem fór með mér á löggustöðina var mjög reiður og spurði þá hvar þeir hefðu eiginlega verið.  Þeir eiga að ganga um hverfið og fylgjast með en ég var búin að labba stóran hring um hverfið og sá ekki einn lögregluþjón.
En að öðru og skemmtilegra. Jóel varð sex ára í gær og vaknaði klukkan hálfsex þannig að það náðist ekki að vekja hann með söng. Margrét Helga hafði verið heima á mánudaginn með uppköst og var líka slöpp í gær og steinsvaf  en vaknaði þó áður en Jóel fór í skólann og náði að gefa honum pakkann sinn. Hann fékk voða flottan 66°N jakka frá Sverri afa og Helenu og bumbuveski frá ömmu og afa á Karló sem hann fékk að fara með í skólann. Svo fékk hann legó og tölvuleik, risaeðlur úr plasti og ýmislegt annað skemmtilegt. Ég var búin að lofa honum að sækja hann í skólann og fara svo út að borða og af því að Margrét Helga var farin að hressast gerðum við það. Asnakú og Sigga komu með okkur og við fórum á Family resturant sem er uppáhaldsstaðurinn hans af því þar fær maður að teikna! Hann er líka duglegur að spjalla við þjónana þar og þeir eru farnir að kannast við þennan litla ljóshærða snáða sem talar reiprennandi amharísku. Jóel lék á alls oddi og dansaði við tónlistina á veitngastaðnum og var alsæll með daginn. Svo í morgun þegar hann vaknaði var hann eitthvað að kvarta um í maganum en mér fannst hann nú ekkert voðalega laslegur svo allt í einu gleymdi hann sér og sagði:" Mig langar svo að kubba- ég meina mér er svo illt í maganum" Við þurftum aðeins að spjalla um að maður ætti ekki að venja sig á að gera sér upp veikindi til að sleppa við að fara í skólann. Honum finnst alveg svakalega gaman í skólanum en þegar maður er búinn að fá svona margt skemmtilegt getur maður alveg hugsað sér að vera frekar heima. Hann fékk líka að taka smá gott með sér í skólann og hélt upp á afmælið í bekknum. Svo á laugardaginn verður allsherjar veilsa hér fyrir bæði Margréti Helgu og Jóel. Ég ætlaði fyrst að stinga upp á að þau hefðu sinhvora veisluna, eitt strákaafmæli og svo stelpu afmæli en það var nú ekki til að tala um. Þau hafa alltaf haft sameiginlega afmælisveislu og svo skildi það líka vera núna! Svo það verða strákarnir úr Jóels bekk og stelpurnar úr Margrétar Helgu bekk og svo norsku krakkarnir. Þau vildu helst bæði bjóða öllum bekknum sínum en ég legg ekki alveg í 50 barna veislu!
10. september
Kristján kom til baka í fyrradag. Það var nú gott að fá hann aftur. Nú á bara pabbi að gera allt svo það léttir aðeins á mér. Davíð Ómar var svo glaðaur að sjá pabba aftur. Hann vildi ekki fara að sofa kvöldið sem hann koma og vildi bara vera í fanginu á honum. Þegar Kristján fór út í bíl að ná í töskuna sína flýtti sá stutti sér í stígvélin og stóð við dyrnar og hrópaði:" babbí, babbí!" Hann var svo hræddur um að pabbi myndi fara aftur. En nú er hann orðin sannfærður um að pabbi er hérna hjá okkur.
Það var svaka afmælisveisla hér á laugardagin. Fantanesh og Asnakú komu báðar til að hjálpa mér og svo var Sigga líka með mér. Það var pöntuð pizza og svo var ég búin að baka afmælisköku og svo gerði Fantanesh vöfflur því ég átti svo mikið af gamalli mjólk. Svo vorum við með leikjaprógramm í kapellunni sem þjónar líka hlutverki íþróttahúss hér á lóðinni. Það varð auðvitað allt fara bæði fram á ensku og norsku svo allir krakkarnir myndu skilja. Margrét Helga og Jóel voru mjög ánægð með daginn.
Við áætlum að fara aftur til Woito á mánudaginn en við erum ekki alveg búin að ákveða hvort við keyrum á einum eða tveimur dögum. Nú þarf bara að versla og ganga frá áður en við förum. Það er frí í skólanum hjá krökkunum á morgun því það er eþíópskur nýjársdagur. Á morgun gengur árið 2001 í garð hér.
Ég reyni að láta í mér heyra áður en við förum en þangað til: Guðs veri með ykkur!